Flúðir er vaxandi þéttbýliskjarni og vinsæll staður að heimsækja.
Fjölbreytt þjónusta og afþreying er í boði á Flúðum og næsta nágrenni í sveitinni.
Gisting er í öllum flokkum; hótel, gistiheimili, bændagisting, heimagisting, og tjaldsvæði. Veitingastaðir eru líka af öllum sortum svo allir geta valið það sem þeim finnst best. Farmers Bistro (Flúðasveppir), Minilik, Hótel Flúðir og Kaffisel, allir með sína sérstöðu og flestir leggja áherslu á hráefni úr nærumhverfi.
Afþreying er mjög fjölbreytt, fyrir alla aldurshópa og áhugasvið. Sundlaugin Flúðum, Gamla laugin (Secret Lagoon) og Hrunalaug (hidden lagoon) eru skemmtilegir baðstaðir. Selsvöllur 18 holu golfvöllur, Markavöllur fótboltagolfvöllur, frisbígolf í Lækjargarðinum, hestaferðir í Syðra-Langholti, Samansafnið á bænum Sólheimum og Hús minninganna á Flúðum.
Gönguleiðir, fjöll til að klífa og fjölbreyttir útivistarmöguleikar allt um kring.
Jarðhiti er mikill á svæðinu, óþrjótandi uppspretta af heitu vatni og landið ákjósanlegt til ræktunar. Fjöldi garðyrkjubýla er í sveitinni og auðvelt er að kaupa sér hollar og góðar matvörur beint frá býli t.d. í Litlu Melabúðinni.
Flúðir eru miðsvæðis á Suðurlandi og stutt í margar helstu náttúruperlur þjóðarinnar, Brúarhlöð, Gullfoss og Geysir eru til dæmis innan seilingar.
Á sumrin er mikil veðursæld og oft háar tölur á hitamælunum á Flúðum.
Tjaldsvæði
Tjaldsvæðið á Flúðum
Tjaldmiðstöðin á Flúðum rekur glæsilegt tjaldsvæði við bakka Litlu Laxár. Flúðir í Hrunamannahrepp
Hótel og gististaðir
The Hill Hotel - Flúðum.
Á The Hill hotel ertu kominn á glæsilegt hótel í dýrðlegri sveit á aðeins um klukkutíma frá
Veitingahús og Skemmtistaðir
The Hill Hotel - Flúðum.
Á The Hill hotel ertu kominn á glæsilegt hótel í dýrðlegri sveit á aðeins um klukkutíma frá
Verslanir
Litla Bændabúðin Flúðum
Ferkst grænmeti og fleirra góðgæti beint frá býli.
OpiðMánudaga-Miðvikudaga : Lok
Handverk og hönnun
Viss á Flúðum
VISS veitir hæfingu, starfsþjálfun og verndaða vinnu fötluðum einstaklingum 18 ára og eldri sem miðar að