Hrunamannahreppur óskar eftir starfsmanni í 50% starf forstöðumanns Bókasafns Hrunamanna. Laun eru skv. kjarasamningum Félags opinberra starfsmanna. Æskilegt er að viðkomandi geti hafið störf í lok ágúst n.k. Allar nánari upplýsingar gefur sveitarstjóri Hrunamannahrepps í síma 480 6600 eða hruni@fludir.is. Umsóknum skal skila á skrifstofu Hrunamannahrepps í síðasta lagi 20. júní n.k.