Hrunamannahreppur óskar eftir starfsmanni í 100% starf í íþrótta- og áhaldahúsi/sundlaug.
Annars vegar er um að ræða 80% starf sem húsvörður í íþrótthúsinu á Flúðum og hins vegar 20% starf í áhaldahúsi/sundlaug vegna barna í sundlaug á skólatíma og annarra verkefna á vegum sveitarfélagsins.
Laun eru skv. kjarasamningum Félags opinberra starfsmanna.
Æskilegt er að viðkomandi geti hafið störf 1. ágúst n.k.
Allar nánari upplýsingar gefur sveitarstjóri Hrunamannahrepps í síma 480 6600 eða hruni@fludir.is eða umsjónarmaður íþróttamannvirkja arnaths@gmail.com.
Umsóknum skal skila á skrifstofu Hrunamannahrepps í síðasta lagi 10. júní n.k.