Vegna forfalla vantar tvo starfsmenn í hlutastarf til að hafa sameiginlega umsjón með starfsemi Félagsmiðstöðvarinnar Zero á Flúðum út maí 2021.
Félagsmiðstöðin er rekin í samvinnu Hrunamannahrepps og Skeiða- og Gnúpverjahrepps. Laun eru skv. kjarasamningum Félags opinberra starfsmanna en vinnutími og starfskjör eru sveiganleg.
Nauðsynlegt er að viðkomandi geti hafið störf sem fyrst.
Allar nánari upplýsingar gefur sveitarstjóri Hrunamannahrepps í síma 480 6600 eða jon@fludir.is. Umsóknum skal skila á skrifstofu Hrunamannahrepps í síðasta lagi 22. mars n.k.