Á Hrunamannaafrétti er að finna fjóra gangnamannakofa/sæluhús sem eru hafðir til útleigu á sumrin.
Umsjónarmenn fjallaskála Hrunamannahrepps eru Arna Þöll Sigmundsdóttir og Þorsteinn Gunnar Þorsteinsson. Þau taka við pöntunum í netfangið fjallaskalar@gmail.com eða í síma 772-1299.
Einnig er starfrækt ferðaþjónusta í Kerlingarfjöllum.
Skálarnir eru:
Helgaskáli
Helgaskáli er á svokölluðum línuvegi á milli Tungufellsdals og Þjórsárdals. Skálinn stendur við Stóru-Laxá rétt við Geldingafell.
Í skálann er rennandi vatn,ný salernisaðstaða innangengt úr skála, hesthús og hestagerði. Tæki og áhöld til eldunar eru til staðar.
Kojur er í skálanum fyrir um 24 manns
Hnit: L 64 17 185 / B 19 53 608
Svínárnes
Skálinn í Svínárnesi stendur við Svíná innan við Búrfell á miðjum Hrunamannaafrétti. Þar er rennandi vatn, hesthús og hestagerði.
Tæki og áhöld til eldunnar eru til staðar.
Gamli torfkofi er nýlega uppgerður.
4 tveggja manna kojur er í skálanum og svefnloft með dýnum, komast fyrir um 15 manns þar.
Hnit: L 64 28 221 / B 19 44 510
Leppistungur
Skálinn í Leppistungum var reistur 1987 og stendur við Kerlingará ofarlega á Hrunamannaafrétti.
Í skálann er rennandi vatn, hesthús og hestagerði.
Tæki og áhöld til eldunar eru til staðar.
Kojur er í skálanum fyrir um 24 manns
Hnit: L 64 31 975 / B 19 29 013
Fosslækur
.
Nýtt sæluhús var tekið í notkun 2008.
Í skálanum er rennandi vatn og salernisaðstaða inní skálanum. Hestagerði og reiðtygjageymsla.
Tæki og áhöld til eldunar eru til staðar. Kojur fyrir 20 manns eru í skálanum.
Hnit:
Árið 2004 var stofnað nýtt áhugamannafélag um uppbyggingu eldri gangnamannakofa á afréttinum. Heitir það Ásæl og hefur það endurbyggt gömlu sæluhúsin í Svínárnesi, Fosslæk og grjótkofann í Leppistungum.