Náms- og rannsóknarstyrkur Vísinda- og rannsóknarsjóður Suðurlands auglýsir eftir umsóknum um náms- og rannsóknarstyrk fyrir árið 2019. Úthlutað verður kr. 1.500.000 í styrki þetta árið.
AUGLÝSING UM SKIPULAGSMÁL Bláskógabyggð, Grímsnes-og Grafningshreppi, Hrunamannahreppi, Skeiða-og Gnúpverjahreppi, Flóahreppi og Ásahreppi
Auglýsing 23. október 2019 til auglýsingar Aðalskipulagsmál.
ATVINNA – Umsjónarmaður gámasvæðis og umhverfismála
Atvinna Umsjónarmaður gámasvæðis og umhverfismála Hrunamannahreppur óskar eftir starfsmanni í 100% starf sem umsjónarmaður gámasvæðis og til að sinna umhverfismálum í Hrunamannahreppi.
Qigong lífsorkan og gleði 😊 í Félagsheimilinu Árnesi laugardaginn 2. nóvember Heilsuefling fyrir konur og karla á öllum aldri
Qi (Chi) er hrein tær orka í allri náttúrunni – frumaflið – lífsorkan. Qigong æfingar og hugleiðsla hafa góð áhrif á líkama og sál. Þær byggja upp jákvætt hugarfar og styrk til að standa óhrædd með okkur í dagsins önn. Ástundun Qigong hefur góð áhrif á samskipti, eykur hugarró og einbeitingu.
Umhverfis- og tæknisvið Uppsveita
Sjá hér: Þjónustugátt vegna rafrænna byggingarleyfa tekin í notkun Kynningarfundur vegna innleiðingar þjónustugáttar vegna rafrænna byggingarleyfa verður haldinn í Félagsheimilinu Borg í Grímsnesi miðvikudaginn 16.október kl. 17.00
Söngur og sagnir á Suðurlandi” Hrunakirkja 13. október n.k.
Tónleikar og sagnastund verður í Hrunakirkju sunnudaginn 13. október kl. 20. Tónlistarflutning annast Björg Þórhallsdóttir sópran, Elísabet Waage harpa og Hilmar Örn Agnarsson organisti sem leikur á harmóníum. Þau flytja blandaða dagskrá af íslenskum sönglögum, trúarljóðum og þekktum perlum tónbókmenntanna. Á tónleikunum kemur einnig fram Kirkjukór Hruna- og Hrepphólasókna undir stjórn Stefáns Þorleifsssonar. Aðgangur er ókeypis og allir eru hjartanlega …
Byggingarlóð laus til umsóknar
Sveitarfélagið Hrunamannahreppur auglýsir til úthlutunar eftirtalda lóð á Flúðum Laus íbúðarlóð (raðhúsalóð)
Minningarorð Loftur Þorsteinsson fyrrverandi oddviti Hrunamannahrepps
Minningarorð Loftur Þorsteinssonar, fyrrverandi oddvita Hrunamannahrepps, lést á Heilbrigðisstofnun Suðurlands á Selfossi 5. september síðastliðinn, 77 ára að aldri. Loftur var mjög virkur í félagslífi hér í sveit í marga áratugi, hvort sem var í stjórnum félagasamtaka eða nefndarstörfum fyrir sveitarfélagið. Þannig lagði hann sín lóð á vogarskálarnar fyrir samfélagið okkar. Loftur var kjörinn í hreppsnefnd Hrunamannahrepps 1978 og …
Fjárrekstrar í Hrunamannahreppi
Vinsamleg skilaboð frá fjallskilanefnd.. Tafir vegna fjárrekstra í Hrunamannahreppi 2019. Fimmtudaginn 12.september og föstudaginn 13.september má búast við umferðartöfum á eftirtöldum vegum í Hrunamannhreppi vegna fjárrekstra. Fimmtudagurinn 12.september Skeiða – og Hrunamannavegur F30 frá Tungufellsvegi F349 að Hrunaréttum frá kl 10:00 og fram eftir degi. Föstudagurinn 13.september Hrunavegur F344 frá Hrunaréttum að Núpstúni frá kl 13:00 fram eftir degi. Hrunavegur …