Héraðsnefnd Árnesinga bs. óskar eftir tilboðum í verkið;
Héraðsskjalasafn Árnesinga – Húsnæði
Verkið felst í útvegun á framtíðarhúsnæði fyrir Héraðsskjalasafn Árnesinga.Um er að ræða um það bil 700m2 húsnæði miðsvæðis á Selfossi, nýtt eða notað, sem þarf að henta sérstaklega þörfum héraðsskjalasafnsins samkvæmt nánari útlistun í útboðsgögnum.
Verklok eru á haustmánuðum árið 2022.
Útboðsgögn verður afhent á rafrænu formi frá og með fimmtudeginum 8. apríl 2021. Þeir sem hyggst gera tilboð í verkið skulu hafa samband við Guðmund Hjaltason á skrifstofu Eflu á Suðurlandi með tölvupósti í netfangið gudmundur.hjaltason@efla.is og gefa upp nafn, heimilisfang, síma og netfang og fá í kjölfarið útboðsgögnin send í tölvupósti.
Tilboðum skal skila á skrifstofu Eflu að Austurvegi 1-5 á Selfossi fyrir klukkan 11.00 fimmtudaginn 22.apríl 2021 og verða þau opnuð þar að viðstöddum þeim bjóðendum sem þess óska.
Héraðsnefnd Árnesinga bs.