Tafir vegna fjárrekstra í Hrunamannahreppi 2022.
Fimmtudaginn 8.september og föstudaginn 9.september má búast við umferðartöfum á eftirtöldum vegum í Hrunamannahreppi vegna fjárrekstra.
Fimmtudagurinn 8.september
Skeiða – og Hrunamannavegur F30 frá Tungufellsvegi F349 að Hrunaréttum frá kl 10:00 og fram eftir degi.
Föstudagurinn 9.september
Hrunavegur F344 frá Hrunaréttum að Núpstúni frá kl 13:00 fram eftir degi.
Hrunavegur F344 frá Hrunaréttum að Syðra-Langholti frá klukkan 13:00 og fram eftir degi
Hrunavegur F344 frá Hrunaréttum að Haukholtum frá klukkan 13:00 og fram eftir degi.
Réttað verður í Hrunaréttum föstudaginn 9. september og hefjast réttir klukkan 10.00
Fjallskilanefnd Hrunamannahrepps.