Tónleikar og sagnastund verður í Hrunakirkju sunnudaginn 13. október kl. 20. Tónlistarflutning annast Björg Þórhallsdóttir sópran, Elísabet Waage harpa og Hilmar Örn Agnarsson organisti sem leikur á harmóníum. Þau flytja blandaða dagskrá af íslenskum sönglögum, trúarljóðum og þekktum perlum tónbókmenntanna. Á tónleikunum kemur einnig fram Kirkjukór Hruna- og Hrepphólasókna undir stjórn Stefáns Þorleifsssonar. Aðgangur er ókeypis og allir eru hjartanlega velkomnir.