Innviðaráðuneytið , í samvinnu við landshlutasamtök sveitarfélaga, býður íbúum í öllum landshlutum til opins samráðs á fjarfundum í október undir yfirskriftinni „Vörðum leiðina saman“.
Fundur Sunnlendinga verður þann 11. október kl. 15:00 -17:00 á fjarfundabúnaðnum Teams.
Á fjarfundunum verður kastljósinu beint að framtíðaráskorunum í málaflokkum ráðuneytisins. Meginviðfangsefni þeirra verða umræður um stefnumótun í samgöngum, sveitarstjórnarmálum og húsnæðis- og skipulagsmálum. Einnig verður nýsamþykkt byggðaáætlun kynnt.
Öllum er velkomið að taka þátt í fjarfundunum milli kl. 15:00-17:00 á auglýstum fundardögum. Fundirnir verða haldnir í gegnum fjarfundarbúnaðinn Teams en skráning fer fram á slóðinni sem hér fylgir. Skráningu lýkur daginn fyrir hvern fund. Þátttakendur fá boð í tölvupósti til að tengja sig á fundina. Þeir fá einnig gögn til að undirbúa sig fyrir fundinn.
https://www.stjornarradid.is/raduneyti/innvidaraduneytid/radstefnur-og-fundir/vordum-leidina-saman-/