Fara í efni

Samningur undirritaður við ÁSÆL

Erla Jóhannsdóttir, fráfarandi formaður ÁSÆLS undirritaði samninginn ásamt sveitarstjóra Aldísi Hafsteinsdóttur.  Við hlið þeirra sitja Jón Bjarnason, oddviti, frá Skipholti III, og Eiríkur Kristófersson, Grafarbakka.
Erla Jóhannsdóttir, fráfarandi formaður ÁSÆLS undirritaði samninginn ásamt sveitarstjóra Aldísi Hafsteinsdóttur. Við hlið þeirra sitja Jón Bjarnason, oddviti, frá Skipholti III, og Eiríkur Kristófersson, Grafarbakka.

Samningur var undirritaður á milli ÁSÆL, áhugafélags um uppbyggingu sæluhúsa á Hrunamannaafrétti og Hrunamannahrepps á aðalfundi félagsins sem haldinn var  á 20 ára afmælisdegi félagsins, þann 18. mars s.l. 

Tilgangur samningsins er að viðhaldið verði þeim menningararfi sem felst í gömlum sæluhúsum á afrétti Hrunamanna og að viðurkennt sé mikilvægi sjálfboðinna starfa eins og þeirra sem félagar í ÁSÆL hafa sinnt með eftirtektarverðum hætti við uppbyggingu og viðhald sæluhúsa á afréttinum síðustu tvo áratugina

Félagar í ÁSÆL hafa byggt upp og endurnýjað að hluta eða að öllu leyti gömul sæluhús í Leppistungum, í Svínaárnesi, í Fosslæk og í Mikluöldubotnum. Fosslækur hefur verið helsta stolt félagsins og snýr samningurinn ekki síst að viðhaldi þess skála sem og viðhaldi á gömlum torfhúsum í Svínárnesi og Leppistungum ásamt viðhaldi á nýju húsi í Mikluöldubotnum.

Samningurinn er í gildi í þrjú á og á samningstímanum skuldbinda félagar í ÁSÆL sig til að lagfæra torf á skálunum, bera á timburverk, klára framkvæmdir í Mikluöldubotnum, halda árlega opinn viðburð tengdum starfi félagsins og sjá til þess að umhverfi skálanna sé til sóma.  Í staðinn greiðir Hrunamannahreppur félaginu kr. 1.235.000,- á þeim þremur árum sem samningurinn gildir. 

Á fundinum færði Hrunamannahreppur félaginu kamínu í  20 ára afmælisgjöf en vonir standa til að kamínan muni nýtast félagsmönnum sem og öðrum gestum í einum af skálunum á afréttinum.  

Félagsmönnum er óskað innilega til hamingju með öflugt starf félagsins síðastliðin 20 ár og óskir um farsælt starf í framtíðinni. 


Sveitarstjóri