Fara í efni

Sveitarstjórn styður uppbyggingu Kjalvegar

Myndin er fengin að láni á síðunni www.midjan.is
Myndin er fengin að láni á síðunni www.midjan.is

Á fundi sveitarstjórnar Hrunamannahrepps þann 7. mars s.l. var lögð fram umsagnarbeiðni frá Umhverfis- og samgöngunefnd Alþingis um 96. mál - Endurnýjun vegarins yfir Kjöl með einkaframkvæmd.

Eftirfarandi ályktun var samþykkt samhljóða af sveitarstjórn:

Sveitarstjórn telur að miklir möguleikar felist í uppbyggingu Kjalvegar og hvetur þingmenn til að veita tillögunni brautargengi.

Kjalvegur sem byggður yrði upp sem heilsársvegur með fullri burðargetu gæti gjörbreytt umferð um landið og stuðlað að breytingu í byggðamynstri og uppbyggingu í hinum dreifðari byggðum. Með betri vegi sem tryggir styttri ferðatíma milli landshluta yrði til nýtt flæði milli Suðurlands og Norðurlands með tilheyrandi jákvæðum áhrifum á ferðaþjónustu og atvinnulíf almennt.

Vert er að geta þess að með nýjum og betri Kjalvegi myndi vegalengdin milli Flúða og Akureyrar styttast um 224 km og verða tveggja og hálfs tíma ferðalag í stað þess að í dag fer lunginn úr deginum í slíka ferð.

Sveitarstjórn vill jafnframt minna á mikilvægi þess að veginum verði fundinn staður á besta mögulega stað og reynt verði eftir megni að sneiða hjá snjóþungum og veðurfarslega erfiðum svæðum en Bláfellsháls hefur oft verið nefndur sem farartálmi í því samhengi.

Sveitarstjórn hvetur alþingismenn til að veita málinu brautargengi, slíkt yrði farsælla en nokkrum gæti órað fyrir.