Fara í efni

VISS vinnu- og hæfingarstöð á Flúðum óskar eftir að ráða starfsmann í 50% stöðu.

VISS vinnu- og hæfingarstöð á Flúðum óskar eftir að ráða starfsmann í 50% stöðu.

VISS á Flúðum er vinnustaður fyrir fólk með skerta starfsgetu. Unnið er að því að styðja og efla starfsmenn í vinnu og virkni. Hjá VISS er unnið eftir hugmyndafræðinni „Þjónandi leiðsögn“ og „Sjálfstætt líf“. Leiðbeinendur vinna samkvæmt lögum nr. 38/2018 um þjónustu við fatlað fólk með langvarandi stuðningsþarfir og lögum um félagsþjónustu sveitarfélaga nr. 40/1991 auk tengdra reglugerða.

Helstu markmið starfsins eru:

  • Faglegt starf með fötluðu fólki
  • Leiðbeina, styðja og hvetja
  • Skapa öryggi og vellíðan á vinnustað
  • Efling sjálfsákvörðunarréttar fatlaðs fólks

Hæfniskröfur:

  • Menntun sem nýtist í starfi
  • Reynsla af starfi með fötluðu fólki er æskileg
  • Frumkvæði og sjálfstæði í starfi
  • Hæfni í mannlegum samskiptum
  • Jákvæðni og góð þjónustulund

Umsóknarfrestur er til 19. apríl 2024 og skal skila umsóknum á netfangið else@fludir.is

Nánari upplýsingar veitir Else Nielsen forstöðumaður VISS á Flúðum í síma 690 6024 eða með tölvupósti á netfangið else@fludir.is og Ragnhildur Jónsdóttir forstöðuþroskaþjálfi ragnhildur@arborg.is eða í síma 480-6920