Fara í efni

Fagurt galaði fuglinn sá...... Vortónleikar Vörðukórsins

Vortónleikar Vörðukórsins í Skálholtskirkju verða í kvöld miðvikudaginn 17. apríl 2024 kl.20.00

 

Fjölbreytt dagskrá að vanda: fuglar, vor, haust, vetur, sumar, gleði, von og trú.

Auk kórsins munu nokkrir kórfélagar stíga á stokk með söng og hljóðfæraleik.

Stjórnandi kórsins er Eyrún Jónasdóttir og píanóleikari Arnhildur Valgarðsdóttir.

Miðaverð er kr. 4000.

Miðar verða seldir við innganginn en einnig er hægt að nálgast þá í forsölu í síma 821-8761 eða á netfangið megaram80@gmail.com