Fara í efni

Lausar stöður sálfræðings og talmeinafræðings

Lausar stöður sálfræðings og talmeinafræðings

 

Skóla- og velferðarþjónusta Árnesþings bs. auglýsir fullt starf fullt starf sálfræðings og tímabundið 60% starf talmeinafræðings.

Á starfssvæðinu eru um 650 börn á leik- og grunnskólaaldri sem sækja nám í 10 leik-og grunnskólum. Tveir þeirra eru samreknir leik- og grunnskólar.

Stefna Skóla- og velferðarþjónustu Árnesþings bs. er að þróa faglega og samþætta skóla- og velferðarþjónustu með farsæld barna og fjölskyldna að leiðarljósi. Starfssvæðið er víðfeðmt og munu stjórn og starfsmenn þróa stafræna þjónustu og lausnir eftir því sem við á. Starfsmenn geta valið starfsstöð á starfssvæðinu í samræmi við verkefni hverju sinni og fjarvinnustefnu en meginstarfsstöð þjónustunnar er í Laugarási. Sveitarfélögin sem standa að Skóla- og velferðarþjónustunni eru Bláskógabyggð, Flóahreppur, Grímsnes- og Grafningshreppur, Hrunamannahreppur og Skeiða- og Gnúpverjahreppur og hafa þau flest hlotið viðurkenningu BSRB sem framúrskarandi vinnustaðir.

 

Talmeinafræðingur 60% stöðuhlutfall

Talmeinafræðingur er hluti af teymi sérfræðinga sem sinnir samþættri skóla- og velferðarþjónustu fyrir börn og fjölskyldur. Hjá Skóla-og velferðarþjónustunni starfar nú þegar tveir talmeinafræðingar. Leitað er að metnaðarfullum og lausnamiðuðum einstaklingi sem býr yfir góðri þekkingu á skóla- og/eða velferðarþjónustu. Starfið er tímabundið vegna fæðingarorlofs.

 

Starfssvið

  • Skima fyrir og greina málþroskavanda barna með áherslu á áætlanagerð og eftirfylgd.
  • Veita íhlutun með áherslu á snemmtæka íhlutun og árangursríkar leiðir í starfi.
  • Þátttaka í teymisvinnu með starfsfólki leik- og grunnskóla og veita ráðgjöf til þeirra.
  • Þátttaka í fræðslu um málþroska, málþroskaröskun og áhrif hennar á möguleika til menntunar.
  • Leiðbeina og fræða foreldra um málþroska og leiðir til að efla hann.
  • Stuðla að fyrirbyggjandi aðgerðum varðandi málþroska og læsi barna með því að beita snemmtækri íhlutun ásamt því að vera þátttakandi í skipulagðri íhlutun og kennslu.

Menntunar- og hæfniskröfur

  • Háskólapróf í talmeinafræði og leyfi til að starfa sem talmeinafræðingur.
  • Þekking og reynsla af skólastarfi æskileg.
  • Hæfni til að sinna fræðslu og ráðgjöf til nemenda, starfsmanna og foreldra.
  • Faglegur metnaður til að efla málþroska og læsi nemenda.
  • Frumkvæði, sjálfstæði og góð skipulagshæfni.
  • Góð almenn tæknikunnátta og hæfni til að tjá sig í ræðu og riti.
  • Lipurð í samstarfi og góð hæfni í mannlegum samskiptum.

 

 

Sálfræðingur

Sálfræðingur er hluti af teymi sérfræðinga sem sinnir samþættri skóla- og velferðarþjónustu fyrir börn og fjölskyldur. Leitað er að metnaðarfullum og lausnamiðuðum einstaklingi sem býr yfir góðri þekkingu á skóla- og/eða velferðarþjónustu.

 

Starfssvið

  • Mat á þroska, hegðun og líðan nemenda.
  • Sálfræðilegar athuganir og greiningar á börnum og unglingum, ráðgjöf og eftirfylgni mála.
  • Ráðgjöf til foreldra og starfsfólks leik- og grunnskóla.
  • Ráðgjöf og stuðningur við barnaverndarþjónustu.
  • Samskiptum við aðrar stofnanir sem sinna börnum og fjölskyldum og samræma þjónustu.

 

Menntunar- og hæfniskröfur

  • Sálfræðimenntun og réttindi til að starfa sem sálfræðingur.
  • Þekking og reynsla af sálfræðilegum greiningum á börnum.
  • Þekking og reynsla af leik- og grunnskólastarfi, þekking af velferðarþjónustu og barnavernd er kostur.
  • Þekking og reynsla af ráðgjöf.
  • Frumkvæði, sjálfstæði og góð skipulagshæfni.
  • Lipurð í samstarfi og góð hæfni í mannlegum samskiptum.
  • Þekking á stjórnsýslu sveitarfélaga kostur.
  • Góð almenn tæknikunnátta nauðsynleg.
  • Góð íslenskukunnátta og hæfni til að tjá sig í ræðu og riti.

 

 

Hjá Skóla- og velferðarþjónustu Árnesþings starfar öflug liðsheild sérfræðinga sem vinnur í þverfaglegu samstarfi þar sem áhersla er lögð á samvinnu, snemmtæka íhlutun og farsæld í þágu barna

 

Umsóknarfrestur er til og með 4. júní 2023

Umsókn skal sendast rafrænt á netfagnið: gunnlaug@arnesthing.is, henni þarf að fylgja starfsferilskrá og kynningarbréf þar sem gerð er grein fyrir ástæðu umsóknar og hæfni umsækjanda til starfans, ásamt prófskírteinum.

Launakjör eru samkvæmt kjarasamningi Sambands íslenskra sveitarfélaga og stéttarfélags viðkomandi. Áhugasamir hæfir umsækjendur, óháð kyni og uppruna, eru hvattir til að sækja um. Umsækjendur þurfa að vera tilbúnir til að kynna sér og nota rafrænar lausnir í þjónustunni.

 

Nánari upplýsingar um starfið veitir Gunnlaug Hartmannsdóttir, deildarstjóri skólaþjónustu í síma 4801180, eða á netfangi gunnlaug@arnesthing.is.