Fara í efni

Byggðarþróunarfulltrúi

Byggðaþróunarfulltrúi uppsveita Árnessýslu

Lína Björg Tryggvadóttir

Lína Björg er viðskiptafræðingur og er að ljúka mastersnámi í sjávarbyggðafræðum, þverfræðilegu meistaranámi þar sem fengist er við þróun byggða í fortíð og framtíð, auk diplómu í opinberri stjórnsýslu.

Starf byggðaþróunarfulltrúa er margþætt en hann veitir ráðgjöf og handleiðslu á sviði atvinnu- og byggðaþróunar, vinnur að upplýsingaöflun, miðlun upplýsinga og að svæðisbundnum verkefnum á sviði byggðaþróunar.

Auk þess kemur hann að ferðatengdum málum og málum tengdum fjölmenningu. Byggðaþróunarfulltrúi sinnir einnig verkefnum í samráði við Samtök sunnlenskra sveitarfélaga (SASS) og veitir því upplýsingar um styrki úr Uppbyggingarsjóði Suðurlands ásamt því að hafa góða þekkingu á styrkumsóknum og styrkjum sem í boði eru á hverjum tíma.

Ef þið þurfið aðstoð eða upplýsingar varðandi styrki, frumkvöðlaaðstoð eða annað sem viðkemur fjármögnun verkefna eða þarft almennar upplýsingar eða aðstoð er varðar atvinnuþróunar- eða byggðaþróunarverkefni eða ferðamál þá hafið samband.

Netfang: lina@sveitir.is
Sími: 480-3009
GSM: 859-7870