Fara í efni

Brunavarnir Árnessýslu

Brunavörnum og eldvarnaeftirliti í Hrunamannahreppi er sinnt af Brunavörnum Árnessýslu.

Í  neyðartilfellum skal ávallt hafa samband við Neyðarlínuna í símanúmerið 112.

Aðsetur: Árvegi 1, 800 Selfoss
Sími:  480-0900
Netfang: ba@babubabu.is

Hér má nálgast allar upplýsingar um Brunavarnir Árnessýslu

Hér má nálgast fræðslu og forvarnamyndbönd Brunavarna Árnessýslu

 

Slökkvitækjaþjónusta Suðurlands
Slökkvitækjaþjónusta Suðurlands ehf (SÞS) er í eigu aðildarsveitarfélaga Brunavarna Árnessýslu. Aðsetur SÞS er í Björgunarmiðstöðinni á Selfossi.
SÞS þjónustar lögbýli í sveitarfélögum BÁ líkt og BÁ hefur gert frá upphafi. Sú þjónusta felst í að íbúar í dreifbýli Árnessýslu koma með slökkvitækin til SÞS þar sem starfsmaður skiptir þeim út og afhendir rafhlöður í reykskynjara þeim að kostnaðarlausu.
SÞS sinnir einnig almennri þjónustu og sölu er snertir eldvarnarbúnað á heimilum, fyrirtækjum og stofnunum.
Hægt er að koma með slökkvitæki til yfirferðar hjá SÞS og fá keypt slökkvitæki og reykskynjara alla virka daga frá kl. 8-16.
Síminn hjá SÞS er 480-0900.