Fara í efni

Skólasel

Skólasel 2022-2023

Eins og undanfarin ár verður boðið upp á Skólasel fyrir nemendur í 1. – 4. bekk og verður Heiða Snorradóttir umsjónarmaður þess í vetur.

Markmiðið er að börnunum líði vel og fái notið sín í leik og starfi og er mikil áhersla lögð á frjálsan leik, þar sem Skólasel er í raun frítími barnanna því reynum við að hafa umhverfið sem heimilislegast.

Reglur fyrir Skólasel Flúðaskóla

1.gr.

Foreldrar/forráðamenn sem ætla að nýta þjónustu Skólasels þurfa að sækja um fyrir barn/ börn sín hjá ritara skólans. Ef barn ætlar að hætta í Skólaseli skal berast tilkynning með mánaðar fyrirvara frá foreldri/ forráðamanni til ritara skólans. Miðast uppsögnin við 1. eða 15. dag hvers mánaðar. Hægt er að skrá barn í 1- 4 daga í Skólaseli á viku. Skólaselið er fyrir börn í 1.– 4. bekk í Flúðaskóla.l

2. gr.

Í Skólaseli gilda skólareglur Flúðaskóla. Vinnudagar í Skólaseli eru þeir sömu og nemendadagar í Flúðaskóla. Opnunartími er frá því skóla lýkur frá mánudegi – fimmtudags til kl. 16:00 alla daga. Gjald fyrir vistun í Skólaseli er bundið vísitölu neysluverðs miðað við 1. desember ár hvert og uppfærist 1. janúar ár hvert. Gjaldskrá má finna á heimasíðu Flúðaskóla undir Skólaseli.

3. gr.

Hrunamannahreppur sendir gíróseðil vegna þjónustugjalda mánaðarlega. Verði dráttur á greiðslum verða reiknaðir dráttarvextir, sbr. lög um vexti og verðtryggingu nr. 38/2001.

4. gr.

Að jafnaði koma forföll ekki til frádráttar þjónustugjöldum nema um veruleg forföll sé að ræða og skal það metið í hverju tilfelli fyrir sig af skólastjóra.

Tilkynna þarf forföll til umsjónarmanns Skólasels. Umsjónarmaður heldur dagbók yfir þá sem nýta selið. Sími í Skólaseli er 4806618.

5. gr.

Ef foreldrar/forráðamenn eiga tvö eða fleiri börn í Skólaseli er veittur 25% afsláttur af mánaðargjaldi fyrir annað barn og hvert barn þar á eftir.

Gjaldskrá

Verðskrá 1. janúar – 31. desember 2023 er pr. klst. 400 og hressing 140 kr.

Skráning í skólasel

Skráning fer fram hjá ritara Flúðaskóla í síma 480-6610
Einnig er hægt að senda tölvupóst á netfangið ritari@fludaskoli.is