Fara í efni

Heilbrigðiseftirlit Suðurlands bs.

Heilbrigðiseftirlit Suðurlands bs. (HSL) er rekið sameiginlega af sveitarfélögunum á Suðurlandi og hefur starfað síðan 1. janúar 1984. Núverandi skipulag var innleitt með lögum nr. 7/1998 þ.e. með einni heilbrigðisnefnd fyrir svæðið allt, en fram að því voru á svæðinu 9 heilbrigðisnefndir undir einni svæðisnefnd. Heilbrigðisnefnd Suðurlands er málsvari HSL á milli aðalfunda og framfylgir samþykktum nefndarfunda og aðalfundar. Helstu verkefni Heilbrigðiseftirlits Suðurlands eru:
  
  • Reglubundið eftirlit, leyfisveitingar, s.s. starfsleyfi, tóbakssöluleyfi og brennuleyfi.
  • Sýnataka og rannsóknir á neysluvatni, matvælum og umhverfi.
  • Umsagnir um veitinga- og gististaði vegna rekstrarleyfa sem sýslumenn veita.
  • Umsagnir vegna skipulagsmála til skipulags- og byggingafulltrúa.
  • Umsagnir vegna brennuleyfa sem sýslumenn veita.
  • Vöktun loftgæða og önnur umhverfisvöktun.
  • Hreinsun á lóðum og lendum
    Skráning á framkvæmd eftirlits og niðurstöðum mælinga.


Aðalskrifstofa HSL er á Austurvegi 65, 800 Selfoss.
Skrifstofan á Selfossi er opin
mánudag til fimmtudag frá kl. 10:00 – 15:30 og
föstudaga kl. 10:00 – 14:00 Sími: 480-8250