Fara í efni

Brúarhlöð

Brúarhlöður

Brúarhlöð nefnist efsti hluti af 10 km löngum gljúfrum í Hvítá.

Áin hefur grafið farveg sinn í þursaberg og í því eru ýmsar klettamyndanir og skessukatlar. Í ánni eru tveir þursabergsdrangar sem kallast Karl og Kerling. Trébrú yfir Brúarhlöð var fyrst byggð árið 1906 tilefni af heimsókn Friðriks VIII Danakonungs til

Íslands 1907, en þá var dýrasti vegur Íslandssögunnar Kóngsvegur lagður um Uppsveitir Árnessýslu.
Konungur ásamt föruneyti reið yfir brúna við Brúarhlöð.

Brúin sem stendur yfir ána var byggð 1959 eftir að fyrstu tvær brýrnar skoluðust burt, sú fyrri 1929 og sú seinni 1930. Þegar ekið er yfir brúna getum við ekki ímyndað okkur þá krafta sem þarf til að skola burt brú af þessari stærð.

Hvítaá er vinsæll staður til flúðasiglinga og flúðasigling um Brúarhlöð er ævintýri sem erfitt er að lýsa með orðum.

Googlemaps leið frá flúðum