Aðalfundur Landgræðslufélags Hrunamanna
Aðalfundir Landgræðslufélags Hrunamanna 2025 og 2026 verða haldnir þriðjudagskvöldið 28. apríl klukkan 20:00 í Félagsheimili Hrunamanna.
Á dagskrá eru venjuleg aðalfundarstörf auk þess sem Sigurður H. Magnússon gróðurvistfræðingur mun halda erindi um Hrunamannaafrétt en hann hefur rannsakað gróður og jarðveg í afréttinum frá 1981.
Erindið nefnir Sigurður: Hvernig hefur gróður breyst á afrétti Hrunamanna síðastliðin 100 ár og hverjar eru helstu orsakir breytinganna?
Í erindinu mun Sigurður fyrst fjalla stuttlega um þá nýju þekkingu sem landfræðingar, jarðfræðingar, sagnfræðingar, fornleifafræðingar o.fl. hafa aflað víða á landinu á síðustu áratugum, m.a. með rannsóknum á setkjörnum úr vötnum og tjörnum og með rannsóknum á jarðvegssniðum. Þessi þekking hefur m.a. varpað nýju ljósi á hitafar, gróðursögu og á landnýtingu.
Megináherslu mun Sigurður hins vegar leggja á að lýsa þeim gróðurbreytingum sem orðið hafa í afréttinum síðastliðin 100 ár og skýra hvaða þættir hafa haft þar mest áhrif.
Kjósa þarf um tvo aðalmenn í stjórn.
Hlökkum til að sjá sem flesta, allir velkomnir.
Stjórnin