Fara í efni

Árnar þagna - sýnd í Þingborg

Tilkynning frá Veiðifélagi Stóru-Laxár:

Árnar þagna verður sýnd í Þingborg í Flóahreppi 20. nóvember kl 20.00

Þér er boðið á sýningu nýrri heimildarmynd eftir Óskar Pál Sveinsson og til umræðna að sýningu lokinni milli frambjóðenda til Alþingis og kjósenda í kjördæminu.
Myndin heitir Árnar þagna og fjallar um áhrif sjókvíaeldis á laxi á lífríki og afkomu bænda sem hafa byggt lífsafkomu sína á hlunnindum af sjálfbærum stangveiðum í margar kynslóðir.

NÁNAR UM MYNDINA:
Við sjáum nú hver verður framtíð íslenska villta laxins og samfélaga í sveitum landsins sem hafa notið laxveiðihlunninda kynslóð eftir kynslóð ef ekki verður brugðist við.

Sú framtíð rann upp í Noregi í júní á þessu ári þegar Umhverfisstofnun Noregs fyrirskipaði lokun 33 af þekktustu laxveiðiám landsins vegna skaðans sem sjókvíaeldi á laxi og loftslagsbreytingar hafa valdið á villtum laxastofnum í Noregi. Á einu augnabliki hvarf stór hluti lifibrauðs fjölda samfélaga sem hefur byggt afkomu sína á hlunnindum af stangveiði í marga ættliði.

Í nýrri mynd Árnar þagna, eftir Óskar Pál Sveoinsson, eru viðtöl við eigendur norskra laxáa, sem tekin voru nokkrum dögum eftir að fótunum var kippt undan tilveru þeirra, og fólk í sveitum Íslands um þá framtíð sem mögulega bíður þess og fjölskyldna þeirra.

Myndin verður sýnd í nóvember í öllum landshlutum í samvinnu við veiðifélög og náttúruverndarsamtök á hverjum stað og fer síðar í almenna sýningu í sjónvarpi. Sérstakar sýningar verða líka í Noregi.

Hér er hægt að skoða stiklu úr myndinni:   https://vimeo.com/1002948628   og þetta lykilorð slegið inn: osmann