Firmakeppni Hestamannafélagsins Jökuls
1. maí kl. 12:00-17:00
Reiðhöllin á FLúðum
Firmakeppni Hestamannafélagsins Jökuls verður haldin föstudaginn 1. maí í Reiðhöllinni á Flúðum og byrjar keppnin kl 12:00.
Mótið er skemmtimót þar sem gleðin ræður ríkjum og hvetjum við alla félagsmenn sem eru með hest á járnum að mæta og gera sér dagamun 🦄
Skráning á staðnum!
Mótið er opið fyrir alla og ekkert skráningargjald.
Svo þarf nú ekki að mæta með hest því það eru allir hjartanlega velkomnir til að horfa á og eiga góðan dag í Reiðhöllinni á Flúðum.