Heilsuvika Hrunamannahrepps 2025
Heilsuvikan í ár er vikuna 1-7. September.
Heilsuvikan miðar að því að hvetja íbúa að hlúa að líkamlegri, andlegri og félagslegri heilsu sinni. Ókeypis er í sundlaug, tækjasal og íþróttahús þessa vikuna.
Viðburðir vikunnar:
* Æfing og fyrirlestur frá Primal Iceland - Vilt þú öðlast frelsi í eigin líkama, þar leggja þau áherslu á að geta æft án verkja, auka liðleika og streitustjórnun.
* Kraftlyftinganámskeið - grunnatriði í kraftlyftingum Þjálfari Óttar Guðlaugsson.
* Sundnámskeið fyrir börnin
* Gönguferð með Else Nielsen
* Notalegt flot í sundlauginni á Flúðum
* Kynningar á leiðum til heilunar og sjálfshjálpar
* Jóga og slökun hjá Fjólu
* Hlaupaþjálfun
* Spriklandi kát fyrir morgunhanana
* Kennsla og leiðbeiningar í tækjasalnum
Hlökkum til að hreyfa og rækta okkur saman.
Lýðheilsu- og æskulýðsnefnd