Fara í efni

Opna Golfbúðarmótið 2024 á Flúðum

 
Opna Golfbúðarmótir 2024 verður haldið á Selsvelli á Flúðum laugardaginn 6. júlí n.k.
Leikfyrirkomulagið er punktakeppni í flokkum karla og kvenna og er hámarks leikforgjöf karla 24 og
 kvenna 28.
Verðlaunin eru í formi gjafabréfa frá Golfbúðinni í Hafnarfirði, fyrir þrjú efstu sætin í hvorum flokki í punktakeppninni og besta skor án forgjafar í báðum flokkum auk nándarverðlauna á öllum par 3 brautum vallarins.

 

Punktakeppni báðir flokkar:
1 sæti: Gjafabréf að verðmæti 25 þús.
2 sæti: Gjafabréf að verðmæti 15 þús.
3 sæti: Gjafabréf að verðmæti 10 þús.
Höggleikur án forgjafar báðir flokkar:
1.sæti: Gjafabréf að verðmæti 20 þús.

Skráning er á golf.is og mótsgjald er kr. 7.500.

Þessa dagana eru mjög margir vellir lokaðir vegna meistaramóta klúbbanna og Golfbúðarmótið því kjörið tækifæri fyrir þá kylfinga, sem ekki eiga þess kost að leika á sínum heimavelli að skreppa á Flúðir, sem á þessum árstíma skarta sínu fegursta.
Velkomin á Selsvöll.
Golfklúbburinn Flúðir / Golfbúðin í Hafnarfirð