Fara í efni

Byggðasafn Árnesinga 70 ára

Húsið á Eyrarbakka er stærsti safngripur Byggðasafns Árnesinga.
Húsið á Eyrarbakka er stærsti safngripur Byggðasafns Árnesinga.

Fréttatilkynning frá Byggðasafni Árnesinga 

Þann 1. júní voru 70 ár liðin frá því farið var að skrá gripi til Byggðasafns Árnesinga og safn varð til. Skúli Helgason frá Svínavatni sá um söfnunina og mótaði grunnsýningu safnsins sem var til 1995 á Selfossi en síðan í Húsinu á Eyrarbakka. Í aðfangabók Skúla eru fyrstu gripirnir skráðir 1. júní 1953 þegar hann tók við munum frá Arnarstöðum í Flóa ásamt því sem hann skráði gamla muni úr sínum fórum. Stöðug söfnun hefur verið við safnið síðan og nálgast skráðir gripir á áttunda þúsund með undirsöfnum.

Í tilefni afmælisins setti safnið á fót Ásgrímsleiðina ásamt Listasafni Árnesinga og Listasafni Íslands. Minnt er á einn fremsta listamann þjóðarinnar sem fæddist í Árnessýslu og var Ásgrímur Jónsson (1876-1958) listmálari frá Rútsstaða-Suðurkoti í Flóa. Sögustaðir Ásgríms í Flóanum eru til staðar. Í borðstofu Hússins á Eyrarbakka er sýning um æsku Ásgríms, „Drengurinn, fjöllin og Húsið“. Einnig sýningin Hornsteinn í Listasafni Árnesinga.

Í tilefni 70 ára afmælis Byggðasafns Árnesinga hefur verið sett um vefsýning á síðunni www.sarpur.is sem er gagnagrunnur íslenskra safna. Þar er safnið kynnt ásamt vel völdum safnmunum úr safnkosti safnsins. Á sýningunni eru kynntir gripir úr öllum gömlu sveitarfélögum Árnessýslu. Mestallur safnkostur Byggðasafns Árnesinga er skráður í Sarp og geta allir áhugasamir kynnt sér gripi sem eiga sér uppruna í þessu stóra og fjölmenna héraði.

Opið hús verður í varðveisluhúsi Byggðasafns Árnesinga að Búðarstíg 22 á Eyrarbakka í haust.

Stofnun Byggðasafns Árnesinga var á vegum Sýslunefndar Árnessýslu en núverandi eigandi safnsins er Héraðsnefnd Árnesinga, byggðasamlag átta sveitarfélaga sýslunnar. Hlutverk safnsins er söfnun, varðveisla, rannsóknir og miðlun á menningaminjum héraðsins. Safnið heldur uppi grunnsýningu í Húsinu á Eyrarbakka, Eggjaskúrnum, Kirkjubæ og Sjóminjasafninu. Safnið hefur miðlað safngripum á sýningar víða í héraðinu. Einnig sér safnið um Rjómabúið á Baugsstöðum. Innri aðstaða safnsins er að Búðarstíg 22 á Eyrarbakka. Við safnið starfa þrír fagmenntaðir starfsmenn auk lausráðinna starfsmanna yfir sumartímann.

Í söfnum er leitast við að svara spurningunni hver erum við? Hvert var fólkið sem byggði þetta samfélag? Söfn segja sögu með gripum og geyma í sér ákveðin minni. Söfn varðveita því menningu heilla byggðalaga og eru því samfélagslega mikilvæg.

Safnið er opin alla daga kl. kl. 10-17. Kaffi og kleinur fyrir gesti í dag 1. júní 2023.

Vefsýning Byggðasafns Árnesinga í Sarpi: Sarpur - Byggðasafn Árnesinga í 70 ár

Afmælisgrein Lýðs Pálssonar safnstjóra: Byggðasafn Árnesinga 70 ára | byggdasafn.is

Ásgrímsleiðin: Ásgrímsleiðin | byggdasafn.is