Fara í efni

Félagsheimili Hrunamanna Flúðum


Félagsheimili Hrunamanna er samkomuhús sveitarfélagsins og vettvangur fyrir fundahöld, félagsstarf og menningarstarf í Hrunamannahreppi. Húsið er ætlað almenningi og fjölbreyttum félögum og samtökum sem starfa í þágu samfélagsins. Þar er skapaður vettvangur fyrir samkomur, viðburði, félagsstarf og annað starf sem stuðlar að virkri samfélagsþátttöku. Félagsheimilið gegnir mikilvægu hlutverki í að styðja við menningar- og félagslíf og skapa aðstöðu þar sem fólk getur komið saman. Húsið er þannig sameiginlegur samkomustaður samfélagsins, óháð stjórnmálaskoðunum og opinn fjölbreyttri félags- og menningarstarfsemi.

Í félagsheimilinu er starfrækt ýmiskonar þjónusta:

- Ráðhús Hrunamanahrepps
- Menningarhús og bókasafn
- Veislusalir 
- Nuddstofa
-Hárgreiðslustofa

Bókasafn

Félagsheimili Hrunamanna
845 – Flúðir
Sími: 480 6614 / 893 6610
Húsvörður er Sigrún Guðlaugsdóttir felagsheimili@fludir.is



Í félagsheimilinu eru nokkrir mismunandi salir sem henta til fjölbreyttra skemmtana og viðburða. 
Má þar til dæmis nefna veislur ýmiskonar, námskeið, markaði, dansleiki og tónleika.  
Auðvelt er að hýsa alls konar veisluhöld í húsinu  þar með taldar fermingar og brúðkaup.
Mörg góð fundarherbergi eru einnig í félagsheimilinu. 

 

Salurinn uppsettur fyrir uppskruhátíð-markað 


                    
      Salurinn uppsettur fyrir jólaball 2023

Salur settur upp til borðhalds

Stjörnusalur er fallegur rúmgóður salur á efri hæð sem hentar til margvíslegra viðburða. 

Félagsheimili Hrunamanna var vígt sunnudaginn 23. nóvember 1958.
Hér má lesa frétt sem birtist í Suðurlandi það ár:

Félagsheimilið vígt