Barnvænt sveitarfélag
Hrunamannahreppur fékk viðurkenningu frá UNICEF á Íslandi sem Barnvænt sveitarfélag þann 14. nóvember 2025 við hátíðlega athöfn í Félagsheimili Hrunamanna á Flúðum. Viðurkenningin fékkst eftir nokkurra ára innleiðingarferli á verkefninu með aðkomu margra aðila, en aðkoma barna og ungmenna var sú mikilvægasta.
Verkefnið Barnvænt sveitarfélag byggir á alþjóðlegu verkefni UNICEF sem snýr að því að innleiða Barnasáttmála Sameinuðu þjóðanna með markvissum hætti inn í alla stjórnsýslu og starfsemi sveitarfélaga. Verkefnið byggir á eftirfarandi fimm grunnþáttum:
- Þekking á réttindum barna
- Það sem er barninu fyrir bestu
- Jafnræði - að horft sé til réttinda allra barna
- Þátttaka barna
- Barnvæn nálgun
Innleiðing Barnvæns sveitarfélags felur í sér átta skref og það tekur að lágmarki tvö ár að ljúka við innleiðingarhringinn og fá viðurkenninguna Barnvænt sveitarfélag.

Staðfesting er fyrsta skrefið. Eftir að samstarfsamningur er undirritaður er umsjónarmaður Barnvæns sveitarfélags skipaður og stýrihópur verkefnisins er stofnaður. Stýrihópurinn samanstendur af fulltrúum meirihluta og minnihluta, fulltrúum úr stjórnsýslu sveitarfélagsins og öllum fulltrúum ungmennaráðs.
Stöðumat er annað skrefið og eitt mikilvægasta skrefið í innleiðingunni en það tekur um ár í framkvæmd og markmiðið er að kanna stöðu barna í sveitarfélaginu. Stýrihópurinn vinnur stöðumatið eftir eftirfarandi skrefum:
- Stýrihópur svarar leiðbeinandi spurningalistum.
- Spurningakannanir eru lagðar fyrir starfsfólk sveitarfélagsins.
- Spurningakannanir eru lagðar fyrir börn í sveitarfélaginu.
- Barnaþing er haldið í samráði við ungmennaráð.
- Viðtöl eru tekin við sérfræðihópa barna sem valdir eru út frá svörum við leiðbeinandi spurningalistum og niðurstöðum spurningakannana og barnaþings.
Að þessu loknu skrifar umsjónarmaður, með aðstoð stýrihóps greinagerð um stöðumatið og sendir UNICEF. Umsjónarmaður og stýrihópur koma fræðslunni, skrefi þrjú, af stað út frá niðurstöðunum og fræðslan er síðan gegnumgangandi í öllum skrefunum.
Aðgerðaáætlun er fjórða skrefið og hefst þegar stýrihópurinn fær endurgjöf frá UNICEF á greinagerðina. Hrunamannahreppur skilaði inn fyrstu aðgerðaráætlun sinni á haustdögum 2024 og var hún samþykkt í sveitarstjórn 19. desember 2024. Linkur á aðgerðaáætlun
Lokaskýrsla er sjötta skrefið og er skrifuð þegar framkvæmd aðgerða hefur raungerst. Þar er lagt mat á hvernig til hefur tekist að koma aðgerðum í framkvæmd, hvað gekk vel og hvað hefði mátt betur fara. Linkur á lokaskýrslu.
Hluti af lokaskýrslu sveitarfélagsins til UNICEF um innleiðingarferli á Barnvænu sveitarfélagi á að vera úttekt frá Ungmennaráði. Ungmennaráð Hrunamannahrepps ákvað að skila inn frumsömdum texta um Barnasáttmálann ásamt myndbandi þar sem söngur þeirra hljómar undir. Linkur á myndband
Þegar lokaskýrsla hefur verið samþykkt fer fram viðurkenningarathöfn og fékk Hrunamannahreppur viðurkenningu sem barnvænt sveitarfélag, eins og áður segir, þann 14. nóvember 2025, sjöunda sveitarfélagið á Íslandi til að hljóta þá viðurkenningu.
Viðurkenning barnvænna sveitarfélaga gildir í þrjú ár. Til að viðhalda viðurkenningunni að þeim tíma liðnum, þarf að halda innleiðingunni áfram, setja ný markmið og gera nýja aðgerðaáætlun.
Til að fræðast meira um verkefnið Barnvænt sveitarfélag er upplagt að skoða heimasíðu verkefnisins https://barnvaensveitarfelog.is/ eða hafa samband við umsjónarmann innleiðingarinnar, Kolbrúnu Haraldsdóttur kolbrun@fludaskoli.is.