Fara í efni

Útilegumenn í Hrunamannahreppi

Útilegumenn voru fólk sem bjó utan samfélagsins og dvaldi á afskekktum stöðum, á fjöllum eða inn á hálendi Íslands. Sum þeirra voru á flótta undan yfirvöldum en önnur höfðu lent í erfiðum aðstæðum og sáu ekki annan kost en að halda til í óbyggðum. Þekktastur allra útilegumanna er líklega Fjalla-Eyvindur (Eyvindur Jónsson), sem fæddur er árið 1714 á bænum Hlíð hér í Hrunamannahreppi. Fjalla-Eyvindur og kona hans, Halla Jónsdóttir (f. 1720), voru á flótta og launferðalagi í byggð og á öræfum í næstum 40 ár, frá 1745 og fram til 1780.

Nánari upplýsingar um Fjalla - Eyvind má nálgast inn á síðunni "Sagnir af Suðurlandi".

Upplýsingar um gönguleið að byrgi Fjalla-Eyvindar á Skipholtsfjalli og aðrar skemmtilegar gönguleiðir í Hrunmannahreppi "Gönguleiðir".