Fara í efni

Jákvæð niðurstaða ársreiknings 2022

Á fundi sveitarstjórnar þann 4. maí var ársreikningur Hrunamannahrepps fyrir árið 2022 samþykktur við síðari umræðu með eftirfarandi bókun allra sveitarstjórnarmanna:

Hér í Hrunamannahreppi er niðurstaða ársreiknings jákvæð hvort sem litið er til A hluta eingöngu eða A og B hluta samanlagt.

Niðurstaða ársreiknings samstæðu A og B hluta fyrir árið 2022 er jákvæð sem nemur 12,8 m.k. en fjárhagsáætlun gerði ráð fyrir 21 m.kr í rekstrarafgang frá samstæðu. Rekstrarafkoma A hluta er aftur á móti betri eða 31 m.kr..

Hækkun vísitölu var mun meiri en fjárhagsáætlun gerði ráð fyrir en slíkar hækkanir á vísitölu hafa mikil áhrif á rekstrarniðurstöðu allra sem skulda. Hér hefur verðbólga þau áhrif að verðbætur reiknast um 90 m.kr sem er um 48 m.kr. hækkun frá fyrra ári. Í eðlilegu árferði hvað verðlagsþróun varðar væri afkoma sveitarfélagsins betri sem því nemur.

Veltufé frá rekstri A og B hluta nam um 180 m.kr. eða ríflega 11 % af heildartekjum. Handbært fé frá rekstri var 237,5 m.kr. en áætlun gerði ráð fyrir 143,8 m.kr.. Veltufé samstæðu frá rekstri í hlutfalli við afborganir skulda og skuldbindingar er 1,83 sem telst mjög gott. Langtímaskuldir í hlutfalli við veltufé frá rekstri mælt í árum er 5,43 sem einnig er góð niðurstaða.

Fjárfestingar á árinu 2022 námu 234,5 m.kr.. Helstu fjárfestingar ársins fólust í smíði vatnstanks í Berghylsfjalli, gerð kennslueldhúss við Flúðaskóla, endurbótum á lóð Félagsheimilisa Hrunamanna, lagningu hitaveitu frá Kópsvatnsvirkjun og framkvæmdum við Garðastíg. Aðrar fjárfestingar voru smærri í sniðum.

Afborganir langtímalána námu 96,5 m.kr. og tekin ný langtímalán voru 48 m.kr..

Í árslok er hlutfall skulda A hluta sveitarsjóðs af tekjum að frádregnum lífeyrisskuldbindingum sem falla til eftir 15 ár eða síðar 39,9% sem er langt undir skuldaþakinu svokallaða sem gerir þær kröfur til sveitarfélaga að skuldir þeirra skuli ekki fara yfir 150%. Rétt er þó að geta þess að fjármálareglur sveitarfélaga hafa verið afnumdar vegna heimsfaraldurs covid-19 til ársins 2025. Skuldahlutfall samstæðu A og B hluta er 62% sem einnig er langt frá leyfilegu hámarki sem er ánægjulegt.

Í ljósi niðurstaðna ársreiknings ársins 2022 er full ástæða til bjartsýni þegar horft er til framtíðar. Hér er hafin kröftug uppbygging íbúðarhúsnæðis og aðilar í atvinnurekstri horfa til Hrunamannahrepps sem álitlegs kosts hvað uppbyggingu varðar enda eru innviðir hér sterkir á mörgum sviðum og þá ekki síst þegar horft er til hinnar miklu ónýttu orku sem hér er í iðrum jarðar.

Það er verkefni sveitarstjórnar næstu misserin að missa ekki sjónar á mikilvægi góðs rekstrar um leið og sveitarfélaginu er stýrt í átt til meiri vaxtar sem ávallt yrði í takt við hinn góða staðaranda sem hér er.

Sveitarstjórn vill nýta þetta tækifæri og færa stjórnendum og starfsmönnum öllum bestu þakkir fyrir framlag þeirra til ábyrgs rekstrar og góðrar þjónustu.

Sveitarstjórn vill einnig þakka endurskoðendum og skrifstofustjóra fyrir góða vinnu við gerð ársreiknings. Jafnframt ber að þakka traust og ánægjulegt samstarf sveitarstjórnarmanna. Slíkt samstarf er dýrmætt fyrir íbúa alla.