Fara í efni

Samkeppni - hugmyndir óskað að nafni á Frístundamiðstöðina

Næsta haust verða frístund fyrir börn í 1.–4. bekk og félagsmiðstöðin Zero fyrir börn og ungmenni í 5.–10. bekk sameinuð undir eina rekstrareiningu á vegum Hrunamannahrepps.

Af því tilefni leitum við eftir hugmyndum að nýju nafni á frístundamiðstöðina – nafni sem endurspeglar starfsemi fyrir börn og ungmenni í 1. - 10. bekk.

Við hvetjum öll áhugasöm til að senda inn tillögur að nafni. Hvort sem hugmyndin er skemmtileg, frumleg, lýsandi eða tengist sögu og sérkennum sveitarfélagsins, þá viljum við heyra frá ykkur!

Hvernig tek ég þátt?

- Sendu inn tillögu að nafni ásamt stuttum rökstuðningi ef þú vilt hér: https://forms.gle/vqmJGT5BHmdvV4EK7
- Hver einstaklingur má senda inn fleiri en eina tillögu.
- Frestur til að skila inn tillögum er til föstudagsins 21. ágúst.

Skipuð verður dómnefnd á vegum sveitarfélagsins sem fer yfir allar innsendar hugmyndir og velur nafn á nýju Frístundamiðstöðina.

Við hlökkum til að fá skapandi hugmyndir frá íbúum Hrunamannahrepps!

Sendu inn þína hugmynd og taktu þátt í að móta framtíðina! ✨