Nýr forstöðumaður bókaafns/skjalavörslu hjá Hrunamannahreppi.
Edda Jónsdóttir, hefur verið ráðin í starf forstöðumanns bókaafns/skjalavörslu hjá Hrunamannahreppi.
Níu aðilar sóttu um stöðuna og fjórir voru teknir í viðtal. Edda er mannfræðingur frá Háskóla Íslands, með diplómu og masterspróf í mannfræði frá HÍ. Hún er einnig með PDM stjórnendanám frá HÍ.
Edda hefur starfað hjá Reykjavíkurborg við ýmis störf frá árinu 2010. Undanfarið sem verkefnisstjóri stjórnsýslu og stefnumótunar hjá Reykjavíkurborg en þar áður meðal annars sem teymisstjóri stafrænna leiðtoga og á skrifstofu þjónustu og reksturs.
Edda mun taka til starfa að loknu sumarfríi í hinu nýja ráðhúsi/bókasafni/þjónustumiðstöð sem vonandi verður tilbúið á þeim sama tíma.
Við bjóðum Eddu velkomna til starfa í Hrunamannahreppi og hlökkum til samstarfsins.
Sveitarstjóri