Fara í efni

Ársreikningur 2026 samþykktur - 208 m.kr. jákvæð rekstrarafkoma

Ársreikningur Hrunamannahrepps fyrir árið 2025 ásamt sudurliðunum, var samþykktur við síðari umræðu þann 28. apríl sl.  

Eftirfarandi er bókun sveitarstjórnar sem lögð var fram af öllum fulltrúum: 

Við lok þessa kjörtímabils er það gleðilegt að niðurstaða ársreiknings (A og B hluta) Hrunamannahrepps sé jafn góð og raun ber vitni. Er sú staðreynd góður vitnisburður um að rekstur sveitarfélagsins er í góðu jafnvægi og að sá kraftur og jákvæðni sem ríkt hefur í sveitarfélaginu á undanförnum árum er skila sér í betri rekstri en einnig og ekki síður enn betri þjónustu við íbúa. Sú staðreynd styrkir samfélagið að íbúum hefur fjölgað verulega á kjörtímabilinu og grettistaki hefur verið lyft í byggingu húsnæðis, hvort sem litið er til dreifbýlis og/eða þéttbýlisins á Flúðum. Með eflingu innviða og öflugum fyrirtækjum leggjum við grunn að góðum rekstri sveitarfélagsins. En þegar horft er til rekstrar sveitarfélagsins má ekki gleyma hlutverki starfsmanna sem lagt hafa sitt af mörkum til sveitarfélagsins og þannig tryggt að þjónusta sé eins góð og raun ber vitni.

Ánægjuleg rekstrarniðurstaða.
Það er ánægjulegt að rekstrarhagnaður samstæðu A og B hluta nemur 208 m.kr. sem er ein besta niðurstaða í rekstri sveitarfélagsins í áraraðir. Annað árið í röð eru ekki tekin ný langtímalán þrátt fyrir að fjárfestingar næmu 574 m.kr. og greiddar afborganir langtímalána námu 110 m.kr.

Rekstrarafkoma A hluta er jákvæð um 170 m.kr. sem er 47 m.kr. betri niðurstaða en gert var ráð fyrir í fjárhagsáætlun.

Heildartekjur samstæðu A og B hluta námu 1.999 m.kr. en heildargjöld námu 1.589 m.kr. Rekstrarniðurstaða án fjármagnsliða er jákvæð um 305 m.kr. Framlegð frá rekstri (EBIDTA) er 410 m.kr. eða 20,5% af tekjum sem teljast verður harla gott.

Enn er hækkun vísitölu á milli ára meiri en verðbólgumarkmið Seðlabankans gerir ráð fyrir og hefur sú staða áhrif á rekstrarniðurstöðu allra sem skulda. Hér hefur verðbólga þau áhrif að verðbætur reiknast um 49,3 m.kr. á samstæðu A og B hluta sem er þó umtalsvert lægra en á árinu 2023 þegar verðbótaþátturinn nam 65,7 m.kr. Í eðlilegu árferði hvað verðlagsþróun varðar væri afkoma sveitarfélagsins enn betri en nú er.

Veltufé frá rekstri A og B hluta nam um 372,6 m.kr. eða ríflega 18,6 % af heildartekjum. Handbært fé frá rekstri var 318 m.kr.

Fjárfestingar:
Bókfærðar fjárfestingar á árinu 2025 námu 573,7 m.kr. Engin ný langtímalán voru tekin á árinu 2025. Tekjur vegna gatnagerðargjalda námu 129,6 m.kr.

Það er gott að halda því til haga að sveitarfélagið hefur undanfarið fjárfest ríkulega í innviðum en heildarfjárfesting líðandi kjörtímabils nemur um 1.800 m.kr.

Helstu fjárfestingar ársins 2025 fólust í eftirfarandi:

  • Gatnagerð og tilheyrandi veituframkvæmdir við Röðulstanga 77,6 m.kr.
  • Endurnýjun á félagsheimilinu (menningarmiðstöð og ráðhús) 71,3 mkr.
  • Innrétting Hrunamannavegar 3, þrjú rými 212, 5 m.kr.
  • Endurbætur á leikskóla og grunnskóla 27 m.kr.
  • Endurbætur á íþróttamannvirkjum 16 m.kr.
  • Framkvæmdir á móttökustöð Flatholti 32,6 m.kr.
  • Nýr skáli í Svínárnesi 41 m.kr
  • Framkvæmdir á vegum Hitaveitu Flúða 44 m.kr.
  • Framkvæmdir á vegum vatnsveitu 12 m.kr.
  • Framkvæmdir á vegum fráveitu 21,6 m.kr.
  • Aðrar fjárfestingar voru smærri í sniðum

Afborganir langtímalána námu 110,3 m.kr. og tekin ný langtímalán á vegum Hrunamannahrepps voru engin eins og áður sagði. Í árslok er skuldaviðmið sveitarfélagsins, A og B hluta, 70% sem er langt undir skuldaviðmiði því sem sveitarfélögum ber að fara eftir. Skuldaviðmið A-hlutans er 45%.

Batnandi afkoma B-hluta fyrirtækja
Rétt er að geta hér einnig niðurstöðu B- hluta fyrirtækja sem öll sýna nú betri rekstrarafkomu en áður. Jákvæð rekstrarniðurstaða Hitaveitu Flúða sem nemur 19,6 m.kr er ánægjuleg sem og að viðsnúningur er að verða í rekstri Hrunaljóss en tap þess fyrirtækis minnkar nú ár frá ári og nemur nú eingöngu 1 m.kr. Vatnsveitan skilar einnig umtalsvert betri afkomu en áður sem er ánægjulegt. Virðist vera ljóst að fjölgun íbúa og húsnæðs er að skila sveitarfélaginu meiri tekjum en áður og styrkir það rekstrargrundvöll sveitarfélagsins til hagsbóta fyrir alla.

Í ljósi niðurstaðna ársreiknings ársins 2025 er full ástæða til bjartsýni þegar horft er til framtíðar. Þó er ljóst að ytri aðstæður geta breyst hratt og blikur eru á lofti hvað húsnæðismarkaðinn varðar sem í augnablikinu er mikið áhyggjuefni. Ef versta sviðsmyndin hvað húsnæðismarkaðinn raungerist þá mun það hafa áhrif hér eins og annars staðar á landinu.

En það hefur verið ánægjulegt að fylgjst með kröftugri uppbyggingu íbúðarhúsnæðis sem og annars húsnæðis hér í sveitarfélaginu og lóðir fyrir rað-, par- og fjölbýlishús hafa runnið út. Aðilar í atvinnurekstri horfa til Hrunamannahrepps sem álitlegs kosts hvað uppbyggingu varðar enda eru innviðir hér sterkir á mörgum sviðum og munu þeir eflast frekar en hitt á næstunni.

Sveitarstjórn vill nýta þetta tækifæri og færa stjórnendum og starfsmönnum öllum bestu þakkir fyrir framlag þeirra til ábyrgs rekstrar og góðrar þjónustu við íbúa.  Sveitarstjórn vill einnig þakka endurskoðendum og skrifstofustjóra fyrir góða vinnu við gerð ársreiknings. Nú þegar hallar að lokum þessa kjörtímabils er rétt að þakka af heilum hug traust og ánægjulegt samstarf sveitarstjórnarmanna. Slíkt samstarf er dýrmætt fyrir íbúa alla.