Auglýsing um nýtingu lands og landsréttinda innan þjóðlendu
Hrunamannahreppur auglýsir eftir aðila til að nýta lóðina Klakk innan Hrunamannaafréttar.
Umrætt svæði er á þjóðlendu (Hrunamannaafrétti) og leyfi Hrunamannahrepps þarf til að nýta land og landsréttindi á svæðinu, sbr. 3. mgr. 3. gr. laga nr. 58/1998 um þjóðlendur og ákvörðun marka eignarlanda, þjóðlenda og afrétta. Jafnframt þarf samþykki forsætisráðuneytisins þar sem umrædd nýting á að vara lengur en til eins árs, sbr. 2. mgr. 3. gr. sömu laga.
Skilmálar sem einkum verður litið til við ákvörðun um leyfisveitingu á umræddu svæði eru eftirfarandi. Ekki skal litið svo á að röðun þeirra gefi til kynna vægi einstakra skilmála innbyrðis:
- Þekking viðkomandi aðila á þessu svæði.
- Þekking og reynsla viðkomandi aðila af starfsemi afréttarskála á miðhálendinu.
- Frágangur mannvirkja og annarra starfsemi. Sveitarfélagið mun sérstaklega líta til þess að frágangur verði með þeim hætti að samræmist landslagi vel og stingi ekki í stúf við umhverfið að öðru leyti.
- Hvernig viðkomandi hyggst nýta lóð og eftir atvikum skála innan svæðanna og hvernig sú nýting samræmist skilmálum deiliskipulags áætlana svæðanna.
- Sú kvöð er lögð á að fjallmenn hafi aðgang að skálunum við smölun á afréttinum.
Hrunamannahreppur áskilur sér rétt til að hafna öllum tilboðum sem berast fáist ekki viðunandi tilboð.
Upplýsingar um svæðið má nálgast hjá sveitarfélaginu Hrunamannahreppi á netfanginu hruni@fludir.is
Áhugasamir aðilar vinsamlegast sendið umsókn um nýtingu lands eigi síðar en 12. apríl 2026 á netfangið hruni@fludir.is. Í umsókn skulu koma fram upplýsingar um það hvernig umsækjandi uppfyllir framgreinda skilmála og hugmyndir umsækjenda um leiguverð.
Frekari upplýsingar veitir sveitarstjóri Hrunamannahrepps í síma 480-6600.
Netfang sveitarstjóra er aldis@fludir.is
Hrunamannahreppur
845 Flúðum