Brjóstamiðstöð Landspítalans með brjóstaskimun
29. október 2026
Brjóstamiðstöð Landspítala býður upp á brjóstaskimun á Selfossi dagana 2.–12. nóvember 2026.
Geislafræðingar frá Brjóstamiðstöðinni koma á svæðið og veita konum þjónustu í heimabyggð.
Brjóstaskimun er mikilvægur þáttur í forvörnum og getur skipt sköpum fyrir snemmgreiningu brjóstakrabbameins.Allar konur 40 ára og eldri eru velkomnar í brjóstaskimun á tveggja ára fresti.
Tímabókanir
Hægt er að bóka tíma með eftirfarandi hætti:
-
Á netinu: Bóka tíma í brjóstaskimun á Ísland.is
-
Með tölvupósti: brjostaskimun@landspitali.is
-
Í síma: 543 9560
Símatími Brjóstamiðstöðvar er virka daga kl. 9:00–15:30.
Við hvetjum konur í Hrunamannahreppi og nágrenni til að nýta tækifærið og bóka tíma í skimun.