Hrunamannahreppur hefur hlotið viðurkenningu UNICEF sem Barnvænt sveitarfélag
Ítarlegar upplýsingar um innleiðingu og aðferðafræði Barnvæns samfélags má nú finna hér á heimasíðu sveitarfélagsins.
Það er gaman að segja frá því að Hrunamannahreppur er sjöunda sveitarfélagið á landinu til þess að hljóta þessa viðurkenningu. Viðurkenninguna hlýtur sveitarfélagið til þriggja ára og á það kost á að endurnýja hana að þeim tíma liðnum.
Barnvæn sveitarfélög er alþjóðlegt verkefni sem hefur það að markmiði að bæta aðstæður barna og tryggja að ávallt sé tekið tillit til þeirra réttinda og unnið sé samkvæmt Barnasáttmála Sameinuðu þjóðanna í allri ákvarðanatöku, stefnu og vinnu innan sveitarfélagsins. Markmiðið með innleiðingu á Barnvænu sveitarfélagi er að eiga markvisst samráð og í samvinnu við börn og ungmenni varðandi þjónustu sveitarfélagsins.
Hér má fá frekari upplýsingar um verkefnið Barnvænt samfélag í Hrunamannahreppi.