Fara í efni

Hrunamannahreppur hefur hlotið viðurkenningu UNICEF sem Barnvænt sveitarfélag

Kolbrún Haraldsdóttir bar hitann og þungann af innleiðingu verkefnisins.  Hér er hún ásamt Þórarni, umsjónarmanni Félagsmiðstöðvarinnar Zero og Ungmennaráði Hrunamannahrepps.
Kolbrún Haraldsdóttir bar hitann og þungann af innleiðingu verkefnisins. Hér er hún ásamt Þórarni, umsjónarmanni Félagsmiðstöðvarinnar Zero og Ungmennaráði Hrunamannahrepps.

Ítarlegar upplýsingar um innleiðingu og aðferðafræði Barnvæns samfélags má nú finna hér á heimasíðu sveitarfélagsins.  

Það er gaman að segja frá því að Hrunamannahreppur er sjöunda sveitarfélagið á landinu til þess að hljóta þessa viðurkenningu. Viðurkenninguna hlýtur sveitarfélagið til þriggja ára og á það kost á að endurnýja hana að þeim tíma liðnum. 

Barn­væn sveit­ar­fé­lög er al­þjóð­legt verk­efni sem hef­ur það að mark­miði að bæta að­stæð­ur barna og tryggja að ávallt sé tek­ið til­lit til þeirra rétt­inda og unn­ið sé sam­kvæmt Barna­sátt­mála Sam­ein­uðu þjóð­anna í allri ákvarð­ana­töku, stefnu og vinnu inn­an sveit­ar­fé­lags­ins. Mark­mið­ið með inn­leið­ingu á Barn­vænu sveit­ar­fé­lagi er að eiga mark­visst sam­ráð og í sam­vinnu við börn og ung­menni varð­andi þjón­ustu sveit­ar­fé­lags­ins.

Hér má fá frekari upplýsingar um verkefnið Barnvænt samfélag í Hrunamannahreppi.