Fara í efni

Engin verkföll í Hrunamannahreppi

Starfsemi Hrunamannahrepps er með hefðbundnu sniði þessa dagana þrátt fyrir yfirstandandi verkföll BSRB.  Allir starfsmenn Hrunamannahrepps eru í vinnu og því eru vinnustaðir sveitarfélagsins með órofinn rekstur þessa dagana.  Leikskólinn Undraland er með sömu starfsemi og venjulega og það sama gildir um sundlaugina á Flúðum sem er opin alla daga og áhaldahús sveitarfélagsins. 

Hafi ekki samist þann 21. júní þá mun aftur á móti hefjast verkfall 5 starfsmanna leikskólans.  Ef að það verður raunin munu foreldrar fá tilkynningu um fyrirkomulag starfsins tímanlega senda. 

Sveitarstjóri