Fjölmenni sótti vel heppnaða afmælishátíð Hrunamanna
Fjölmenni heimsótti Hrunamannahrepp um síðastliðna helgi í tilefni af því að þá fögnuðu Hrunamenn því að 1150 ár eru liðin frá upphafði byggðar í Hrunamannahreppi. Hrunamannahreppur er elsta hreppanafn landsins sem varðveist hefur allt frá landnámsöld en það á rætur að rekja til Hruna, hins forna höfðingjaseturs, en þeir sem þar bjuggu voru kallaðir Hrunamenn, rétt eins og íbúar Hrunamannahrepps í dag. Dagskrá afmælisdagsins hófst með heimsókn forseta Íslands, frú Höllu Tómasdóttur og eiginmanns hennar Björns Skúlasonar en þau heimsóttu Gömlu laugina, Flúðsveppi og VISS áður en þau komu í Félagsheimili Hrunamanna þar sem fjölmenni tók á móti þeim hjónum og formleg hátíðardagskrá hófst. Dagurinn var síðan þéttskipaður viðburðum, veitingum, gleði og samverustundum en gestir nutu einstakrar veðurblíðu. Greinilegt var að bæði íbúar og gestir fögnuðu afmælisbarninu innilega og haft var á orði að það yrði nú gaman að fá að taka þátt í 1200 ára afmæli Hrunamannahrepps þegar þar að kemur.
Hér er svo hægt að sjá nokkrar myndir frá afmælisdeginum.