Fara í efni

Auglýsing um þjóðaratkvæðagreiðslu

Atkvæðagreiðsla utankjörfundar vegna þjóðaratkvæðagreiðslu um hvort Ísland hefji aðilarviðræður við Evrópusambandið að nýju verður í Ráðhúsi Hrunamannahrepps (efri hæð í Félagsheimili) og hefst hún mánudaginn 17. ágúst 2026.

Opnunartími ráðhúss Hrunamannahrepps, skrifstofu sveitarfélagsins í Félagsheimilinu:
Mánudagar – fimmtudagar 09:00–12:00 og 13:00–16:00
Föstudagar 09:00–12:00

Einnig er hægt að kjósa hjá embætti Sýslumannsins á Suðurlandi – Selfossi Hörðuvöllum 1, Selfossi.
Opnunartímar á skrifstofu sýslumanns vegna utankjörfundaratkvæðagreiðslu:
27. júlí - 14. ágúst, mánudaga til föstudags, 9:00 - 15:00.
17. - 21. ágúst, kl. 9:00 - 17:00.
Laugardaginn 22. ágúst, kl. 10:00 - 12:00.
24. ágúst - 27. ágúst, kl. 9:00 - 18:00.
28. ágúst, kl. 9:00 - 20:00.
Kjördag, 29. ágúst, kl. 11:00 - 15:00.

Þjóðaratkvæðagreiðslan mun fara fram laugardaginn 29. ágúst.
Kjörfundur hefst kl. 9:00 og lýkur kl. 22:00.
Kosið verður í Félagsheimili Hrunamanna - Hrunamannavegi 5.
Kjósendur eru minntir á að hafa með sér persónuskilríki.

Kosningarrétt við þjóðaratkvæðagreiðsluna eiga þeir kjósendur sem hafa kosningarrétt til Alþingis og við forsetakjör, samkvæmt 3. gr. kosningalaga.

Upplýsingar um kosningarétt eru gefnar á síðunni www.thjodaratkvaedi.is

Kjörstjórn Hrunamannahrepps