Ferðaþjónustuaðilar í Uppsveitum ræddu gjaldtöku og rekstrarskilyrði við atvinnuvegaráðherra
Forsvarsmenn ferðaþjónustufyrirtækja í Uppsveitum Árnessýslu funduðu með
atvinnuvegaráðherra um stöðu og þróun ferðaþjónustu á svæðinu. Á fundinum var
meðal annars rætt um fyrirhugaða gjaldtöku á fjölsóttum ferðamannastöðum,
skattabreytingar, leyfisveitingar og mikilvægi fyrirsjáanlegs rekstrarumhverfis.
Rakel Theodórsdóttir, byggðaþróunarfulltrúi Uppsveita Árnessýslu, opnaði fundinn og
fjallaði um þá miklu uppbyggingu sem orðið hefur í ferðaþjónustu á svæðinu undanfarin
ár. Hún benti á að Uppsveitirnar hefðu þróast úr því að vera fyrst og fremst
viðkomustaður ferðamanna í áfangastað þar sem gestir dvelja lengur og nýta fjölbreytta
þjónustu.
Rakel velti því jafnframt upp hvort fremur mætti tala um „Gullnu keðjuna“ en Gullna
hringinn í ljósi fjölgunar áfangastaða og þeirrar uppbyggingar sem orðið hefur á svæðinu.
Hún benti á að heilsársferðaþjónusta hefði skapað stöðugri störf, stutt við búsetu og
aukið framboð þjónustu og afþreyingar fyrir íbúa.
Áhyggjur af áhrifum gjaldtöku
Knútur Rafn Ármann, framkvæmdastjóri og eigandi Friðheima, fjallaði um kynslóðaskipti
í atvinnulífinu og fyrirhugaða gjaldtöku á náttúruperlum.
Hann lýsti áhyggjum af áhrifum gjaldtöku á Þingvöllum, við Gullfoss og Geysi á fyrirtæki
og samfélög í Uppsveitum, þar sem ferðaþjónusta hefur mikið vægi í atvinnulífi
svæðisins. Hann kallaði eftir því að aðrar leiðir yrðu einnig skoðaðar, meðal annars
komugjald eða náttúrupassi sem næði til landsins alls.
Í umræðum var einnig bent á mikilvægi þess að meta samanlögð áhrif fyrirhugaðra
gjalda og annarra breytinga á rekstrarumhverfi ferðaþjónustunnar. Óvissa og skammur
fyrirvari gætu haft áhrif á fjárfestingar, verðlagningu og skipulag ferða og þar með á
atvinnulíf og þjónustu í nærsamfélaginu.
Ráðherra sagði markmið fyrirhugaðs náttúru- og innviðagjalds vera að fjármagna
uppbyggingu og viðhald innviða ásamt markaðsstarfi, rannsóknum og greiningum.
Markmiðið væri ekki að beina ferðamönnum frá Gullna hringnum. Hún hvatti
hagsmunaaðila til að koma sjónarmiðum sínum á framfæri í samráðsferlinu.
Baðlón og leyfismál
Bryndís Björnsdóttir fjallaði um uppbyggingu Laugarás Lagoon og mikilvægi fyrirtækja á
landsbyggðinni þegar kemur að því að skapa heilsársstörf og auka verðmætasköpun.
Hún lýsti áhyggjum af fyrirhuguðum skattabreytingum á baðlón og benti á að aukinn
kostnaður gæti skilað sér í hærra verði til gesta, jafnt Íslendinga sem erlendra
ferðamanna.
Hákon rakti reynslu sína af uppbyggingu og rekstri Hótels Brúar og þeim hindrunum sem
hann hefði mætt í tengslum við leyfisveitingar og eftirlit. Í umræðum var kallað eftir styttri
afgreiðslutíma, skýrari kröfum og auknu jafnræði milli rekstraraðila og landshluta.
Fjóla Steindóra Kristinsdóttir, sveitarstjóri Grímsnes- og Grafningshrepps, stýrði
fundinum og ítrekaði í lok hans vilja fundargesta til áframhaldandi samtals við stjórnvöld
um þau mál sem rædd voru og mikilvægi þess að sjónarmið fyrirtækja og sveitarfélaga á
svæðinu komi fram í áframhaldandi vinnu.
Ráðherra tók undir mikilvægi samráðs og sagði ábendingar fundarins og umsagnir í
samráðsferlinu verða mikilvægt innlegg í áframhaldandi vinnslu málanna.