Fjárfest án lántöku fyrir 407 m.kr.

Ársreikningur Hrunamannahrepps fyrir árið 2024 var samþykktur við síðari umræðu sveitarstjórnar þann 8. maí 2025. Sveitarstjórn bókaði eftirfarandi um leið og hún samþykkti ársreikninginn með öllum greiddum atkvæðum.
Mjög góð niðurstaða í rekstri samstæðu(A og B hluta) Hrunamannahrepps er ánægjuleg og gleðilegur vitnisburður um þá jákvæðni og kraft sem ríkt hefur í sveitarfélaginu á undanförnum árum. Fjölgun íbúa, bygging nýs húsnæðis bæði í dreifbýli sem og í þéttbýlinu á Flúðum, efling innviða og öflug fyrirtæki leggja grunn að góðri rekstrarniðurstöðu. Það gerir einnig sá fjöldi starfsmanna sem lagt hefur sitt af mörkum til að rekstur sveitarfélagsins sé eins góður og raun ber vitni.
- Hagnaður af rekstri 133 mkr.
- Fjárfesting 407,6 m.kr.
- Afborganir langtímalána 106,7 m.kr.
- Tekin ný langtímalán 0 kr.
Niðurstaða ársreiknings Hrunamannahrepps fyrir árið 2024 er jákvæð hvort sem litið er til A hluta eingöngu eða A og B hluta samanlagt.
Niðurstaða ársreiknings samstæðu A og B hluta fyrir árið 2024 er jákvæð sem nemur 133,3 m.kr. sem er betra en árið á undan en þá var rekstrarhagnaður samstæðunnar 122,9 m.kr. Rekstrarafkoma A hluta er jákvæð um 112,6 m.kr. sem er nokkuð umfram það sem vonir stóðu til í fjárhagsáætlun en hún með seinni tíma viðaukum gerði ráð fyrir 78,9 m.kr. hagnaði af rekstri. Heildartekjur samstæðu A og B hluta námu 1.837 m.kr. en heildargjöld námu 1.545 m.kr. Rekstrarniðurstaða án fjármagnsliða er jákvæð um 200,6 m.kr. Framlegð frá rekstri (EBIDTA) er 291,5 m.kr. eða 16% af tekjum.
Enn er hækkun vísitölu á milli ára meiri en verðbólgumarkmið gera ráð fyrir og hefur sú staða áhrif á rekstrarniðurstöðu allra sem skulda. Hér hefur verðbólga þau áhrif að verðbætur reiknast um 65,7 m.kr. á samstæðu A og B hluta sem er þó umtalsvert lægra en á árinu 2023 þegar verðbótaþátturinn nam 95 m.kr. Í eðlilegu árferði hvað verðlagsþróun varðar er afkoma sveitarfélagsins betri sem þessu nemur.
Veltufé frá rekstri A og B hluta nam um 271 m.kr. eða ríflega 14,7 % af
heildartekjum. Handbært fé frá rekstri var 393,4 m.kr. en áætlun gerði ráð fyrir
186,8 m.kr. Langtímaskuldir í hlutfalli við veltufé frá rekstri mælt í árum er 5,36 sem er góð niðurstaða.
Bókfærðar fjárfestingar á árinu 2024 námu 407,6 m.kr. Fjárfestingar á árinu 2023 námu 572 m.kr. Fjárfestingar síðustu tveggja ára nema því rétt tæpum einum milljarði. Engin ný langtímalán voru tekin á árinu 2024. Tekjur vegna gatnagerðargjalda námu 72,1 m.kr.
Helstu fjárfestingar ársins fólust í eftirfarandi:
• Gatnagerð og tilh.veituframkvæmdir við Loðmundartanga
• Endurnýjun á kennslugangi og endurnýjun skólalóðar
• Kaup á hluta Hrunamannavegar 3
• Hönnunarkostnaður vegna innréttingar heilsugæslu
• Ný brú yfir Hellisholtalækinn og nýtt leiksvæði í Norðurbænum
• Upphaf framkvæmda á móttökustöð Flatholti
• Ný gasskilja við virkjunina Kópsvatni
• Aðrar fjárfestingar voru smærri í sniðum
Afborganir langtímalána námu 106,6 m.kr. og tekin ný langtímalán á vegum Hrunamannahrepps voru engin. Bókfært nýtt langtímalán vegna hluta sveitarfélagsins í samstarfsverkefnum byggðasamlaga nemur 9,8 m.kr. Í árslok er skuldaviðmið sveitarfélagsins, A og B hluta, 71% sem er langt undir skuldaviðmiði því sem sveitarfélögum ber að fara eftir. Skuldaviðmið A-hlutans er 43%.
Í ljósi niðurstaðna ársreiknings ársins 2024 er full ástæða til bjartsýni þegar horft er til framtíðar. Fólk og fjárfestar hafa trú á framtíðarmöguleikum Hrunamannahrepps. Hér er í gangi kröftug uppbygging íbúðarhúsnæðis. Nú er svo komið að öllum lóðum fyrir rað-, par- og fjölbýlishús hefur verið úthlutað og lausar til úthlutunar eru einungis 4 einbýlishúsalóðir. Aðilar í atvinnurekstri horfa til Hrunamannahrepps sem álitlegs kosts hvað uppbyggingu varðar enda eru innviðir hér sterkir á mörgum sviðum og munu þeir eflast frekar en hitt á næstunni.
Sveitarstjórn vill nýta þetta tækifæri og færa stjórnendum og starfsmönnum öllum bestu þakkir fyrir framlag þeirra til ábyrgs rekstrar og góðrar þjónustu.
Sveitarstjórn vill einnig þakka endurskoðendum og skrifstofustjórunum báðum fyrir góða vinnu við gerð ársreiknings. Jafnframt ber að þakka traust og ánægjulegt samstarf sveitarstjórnarmanna. Slíkt samstarf er dýrmætt fyrir íbúa alla.