Hækkun virðisaukaskatts á baðlón harðlega mótmælt af sveitarstjórn
Fyrirnhugaðri hækkun virðisaukaskatts á baðlón var harðlega mótmælt á fundi sveitarstjórnar Hrunamannahrepps þann 18. júní 2026.
Vegna málsins samþykkti sveitarstjórn samhljóða eftirfarandi ályktun:
Sveitarstjórn Hrunamannahrepps lýsir verulegum áhyggjum af fyrirhugaðri hækkun virðisaukaskatts á baðlón úr 11% í 24% frá og með næstu áramótum. Baðlón eru mikilvægur hluti af íslenskri ferðaþjónustu og hafa þau víða skapað verðmæt störf, aukið aðdráttarafl svæða og stutt við uppbyggingu í nærsamfélögum.
Í Hrunamannahreppi og nærliggjandi svæðum eru nokkur baðlón sem öll eru mikilvæg atvinnugrein og mikið aðdráttarafl fyrir svæðið í heild. Sveitarstjórn hefur áhyggjur af því að boðaðar breytingar, sem augljóslega veikja samkeppnisstöðu þessarar þjónustu, geti haft víðtæk áhrif á atvinnulíf, fjárfestingar, afkomu einstaklinga og sveitarfélaga.
Sveitarstjórn bendir á að þjónustuaðilar í ferðaþjónustu þurfa fyrirsjáanleika og stöðugleika í rekstrarumhverfi þar sem þjónustan er seld með löngum fyrirvara. Verð hafa í mörgum tilvikum þegar verið gefin út til stórra viðskiptavina og skuldbindingar myndast langt fram í tímann. Verði skattabreyting innleidd með skömmum fyrirvara getur það leitt til tekjutaps, hækkunar á verði til gesta, skertrar samkeppnishæfni og minni fjárfestingarvilja.
Sveitarstjórn Hrunamannahrepps hvetur stjórnvöld til að hætta við fyrirhugaða hækkun og tryggja að mögulegar breytingar á skattaumhverfi baðlóna og ferðaþjónustu verði unnar í nánu samráði við atvinnugreinina og sveitarfélög. Að öðrum kosti er hætta á að skyndilegar breytingar valdi tjóni, svo sem óafturkræfri fækkun ferðamanna með tilheyrandi tekjutapi, sem erfitt getur reynst að vinna til baka.
Þessi afgreiðsla sveitarstjórnar hefur verið send öllum þingmönnum Suðurkjördæmis, fjármálaráðherra og atvinnuvegaráðherra í þeirri von að umræddri ákvörðun verði breytt.
Sveitarstjóri