Fara í efni

Hafðu áhrif á hvert ferðaþjónustan stefnir á Suðurlandi

Opnar vinnustofur fyrir íbúa, sveitarfélög, fyrirtæki, leiðsögumenn og stofnanir

 

Taktu þátt í vefvinnustofu um hvert sunnlensk ferðaþjónusta stefnir á komandi árum. Það skiptir máli að fá fram hugmyndir og skoðanir frá ólíkum hópum og því býður Markaðsstofa Suðurlands íbúum, sveitarfélögum, fyrirtækjum, leiðsögumönnum og stofnunum að taka samtalið. Vinnustofurnar eru liður í uppfærslu Áfangastaðaáætlunar Suðurlands.

Kynntu þér málið, taktu samtalið og skráðu þig hér

 

Vinnustofurnar verða þrjár:

Gullna hrings svæðið - kl. 9:00-11:00 að morgni mánudags 13.apríl
- Ölfus, Hveragerði, Árborg, Flóahreppur, Grímsnes- og Grafningshreppur, Bláskógabyggð, Hrunamannahreppur, Skeiða- og Gnúpverjahreppur, Ásahreppur og Rangárþing ytra.

Katla jarðvangur og Vestmannaeyjar - kl. 9:00-11:00 að morgni þriðjudags 14.apríl
- Vestmannaeyjar, Rangárþing eystra, Mýrdalshreppur og Skaftárhreppur

Ríki Vatnajökuls – kl. 9:00-11:00 að morgni miðvikudags 15.apríl
- Sveitarfélagið Hornafjörður

Þátttakendum er frjálst að mæta á þá vinnustofu sem þeim hentar, óháð búsetu eða starfssvæði. Við hvetjum öll sem eru áhugasöm um þróun síns nærsamfélags til að taka þátt.


Skráning fer fram hér

Hvað er áfangastaðaáætlun?

Áfangastaðaáætlun er heildstæð áætlanagerð með ferðaþjónustuna sem útgangspunkt. Í henni má finna staðreyndir um áfangastaðinn Suðurland, niðurstöður greininga, framtíðarsýn ferðaþjónustunnar á Suðurlandi ásamt markmiðum og áherslum næstu ára.

Áætlunin styður við ferðaþjónustu á Suðurlandi, þó án lagalegrar skyldu. Hún er afrakstur víðtæks samráðs og endurspeglar sameiginlega sýn íbúa, sveitarfélaga og annarra hagaðila á þróun greinarinnar.

Við gerð áætlunarinnar var farið eftir viðurkenndum greiningaraðferðum sem veita innsýn í stöðu ferðaþjónustu á Suðurlandi, tækifæri og áskoranir. Niðurstöður þeirra nýtast til stefnumótunar og aðgerða.

Skoða nánar