Hjónaball Hrunamanna fer fram þann 7. mars
Nú styttist í einn skemmtilegasta viðburð ársins!
Hið árlega hjónaball Hrunamanna verður haldið laugardaginn 7. mars í Íþróttahúsinu á Flúðum. Við hvetjum íbúa og aðra gesti til að taka kvöldið frá, skella sér í sparifötin og mæta í gleðina!
Dagskrá kvöldsins
-
Húsið opnar kl. 18:30
-
Skemmtun hefst kl. 19:30
-
Glæsilegt forrétta- og aðalréttahlaðborð frá Veisluþjónustu Hvíta hússins
- Hljómsveitin Koppafeiti sér um að halda uppi fjörinu ásamts Stebba Hilmars og HubbaBubba.
- Aldurstakmark: 18 ár.
Miðar og pantanir
-
Miðaverð: 16.900 kr.
-
Miðapantanir sendist á: hjonaball@fludir.is
-
Nöfn verða að fylgja pöntunum og einnig ef óskir eru um að sameinast á borð.
-
Pöntun er staðfest með greiðslu inná eftirfarandi reikning:
-
Reikningur: 0325-26-700535
-
Kt.: 640169-2309
-
-
Lokafrestur til að ganga frá pöntun og greiðslu er sunnudaginn 1. mars
🚕 Heimferð
Taxi Selfoss verður með leigubíla á staðnum frá kl. 23:00–04:00
Sími: 482-3800
Komum saman, eigum skemmtilegt kvöld og dönsum inn í nóttina! ✨
Hlökkum til að sjá ykkur!
— Hjónaballsnefndin—