Hrunamannahreppur er sveitarfélag ársins 2026
Sveitarfélag ársins er árleg viðurkenning sem byggir á starfsánægju og starfsumhverfi starfsfólks sveitarfélaga. Gallup framkvæmir könnunina sem er á vegum Mannauðssjóðsins Heklu. Sveitarfélögum er boðið að taka þátt í könnuninni fyrir hönd síns starfsfólks og hefur þátttaka aukist ár frá ári. Könnunin er ein af stærri vinnumarkaðskönnunum sem framkvæmd er hér á landi.
Tilgangurinn með könnuninni er að hvetja stjórnendur sveitarfélaganna til að veita starfsumhverfinu meiri athygli, sem og að ráðast í umbótaverkefni þar sem þess er þörf. Einnig er ætlunin að niðurstöðurnar skapi almenna umræðu um starfsumhverfi og stjórnun á vinnustöðum, félagsfólki stéttarfélaganna til hagsbóta.
Það er ánægjulegt að upplifa með svona áþreifanlegum hætti ánægju starfsmanna og að hún hafi aukist frá síðasta ári en þá var Hrunamannahreppur í þriðja sæti í þessari sömu könnun. En það er einmitt starfsmannahópurinn og okkar góðu stjórnendur stofnana sem gera Hrunamannahrepp mögulegt að veita íbúum jafn góða þjónustu og raun ber vitni. Fyrir það ber að þakka um leið og starfsmönnum öllum er óskað til hamingju með þessa viðurkenningu.
Aldís Hafsteinsdóttir
Sveitarstjóri.