Fara í efni

Valdís Una er íþróttamaður ársins 2025 í Hrunamannahreppi

Emma Rún og Valdís Una, Íþróttamaður ársins 2025.
Emma Rún og Valdís Una, Íþróttamaður ársins 2025.

Viðurkenningar fyrir afrek á sviði íþrótta á árinu 2025 voru afhentar á hátíðardagskrá Hrunamanna þann  17. júní 2026 af formanni Lýðheilsu- og æskulýðsnefndar Hrunamannahrepps, Elísabetu Finnbjörnsdóttur. 

Valdís Una Guðmannsdóttir hefur verið valin Íþróttamaður ársins 2025 í Hrunamannahreppi.

Tvær tilnefningar bárust fyrir árið 2025 og tinefndar voru þær Valdis Una Guðmannsdóttir og Emma Rún Sigurðardóttir

Í ávarpi formanns nefndarinnar komk fram að Valdís Una Guðmannsdóttir var valin körfuknattleikskona Selfoss fyrir árið 2025.   
Uppeldisfélag hennar var UMFH. Eftir að hafa leikið upp yngri flokka hjá Hrunamönnum lék hún fyrir meistaraflokk Hamars/Þórs á árunum 2021-22.
Hún lék með sameiginlegum flokkum á tímabili 2023-25 en árið 2025 var hún ein af stofnendum nýs körfuboltaliðs Selfoss.
Valdís leikur með Selfoss í 1. deild kvenna, þar sem hún hefur verið lykilleikmaður.
Hún hefur verið hluti af yngri landsliðum Íslands síðustu ár og keppt á Evrópumóti U16 í Finnlandi árið 2021. Valdís Una er góð fyrirmynd yngri iðkenda bæði á velli og sem þjálfari þeirra megum við Hrunamenn vera stolt af þessari íþróttakonu okkar.

Emma Rún Sigurðardóttir hefur á keppnisárinu 2025 sýnt mikinn metnað og einlægan vilja til að ná árangri í sinni íþrótt. Hún leggur sig fram við æfingar og keppni og nálgast verkefnin sín af alúð og ábyrgð. Samkvæmt niðurstöðum úr Sportfeng kemur Emma vel út í samanburði við aðra knapa. Hún átti fjölmargar góðar keppnisniðurstöður, náði oft í úrslit og var með hærra meðaltal í sínum bestu sýningum. Sérstaklega má nefna að hún komst í A-úrslit í 11 skipti, sem endurspeglar bæði áræðni og góða frammistöðu yfir tímabilið. Viðhorf Emmu til íþróttarinnar er mjög gott. Hún sýnir mikinn áhuga, vinnusemi og gleði í því sem hún gerir og er góð fyrirmynd fyrir aðra unga knapa, bæði innan og utan keppnisvallar.

Við viljum óska þeim báðum innilega hamingju með þennan flotta árangur og alls hins besta á komandi árum.