Kennsluráðgjafi óskast til Skóla- og velferðarþjónustu Árnesþings bs.
27. maí
Staða kennsluráðgjafa fyrir leik- og grunnskóla á starfssvæði Skóla- og velferðarþjónustu Árnesþings er laus til umsóknar. Um er að ræða 100% stöðu. Hjá Skóla
og velferðarþjónustu Árnesþings starfar öflug liðsheild sérfræðinga sem vinnur í þverfaglegu teymi þar sem áhersla er lögð á samvinnu, snemmtæka íhlutun og farsæld í þágu barna.
Helstu verkefni og ábyrgð
- Ráðgjöf, stuðningur og fræðsla til starfsfólks og skólastjórnenda vegna nemenda í leik- og grunnskólum með fjölbreyttar þarfir
- Stuðningur og ráðgjöf um fjölbreyttar og árangursríkar kennsluaðferðir
- Ráðgjöf og stuðningur til forráðamanna barna í leik- og grunnskólum
- Ráðgjöf um kennslu nemenda með fjölbreyttan tungumála- og menningarbakgrunn
- Þverfaglegt samstarf um málefni nemenda í leik- og grunnskólum
- Stuðningur við forvarnar- og þróunarstarf skóla m.a. með ráðgjöf við starfsfólk leik- og grunnskóla
Menntunar- og hæfniskröfur
- Leyfisbréf kennara
- Kennslureynsla í leik- og grunnskóla
- Framhaldsnám sem nýtist í starfi æskilegt
- Þekking á fjölbreyttum náms- og kennsluaðferðum
- Þekking og reynsla af ráðgjöf og stuðning við nemendur varðandi hegðun og líðan
- Skipulagshæfni, sjálfstæði og frumkvæði
- Þjónustulund og hæfni í mannlegum samskiptum
- Góð hæfni til að tjá sig í ræðu og riti