Fara í efni

Laus staða forstöðumanns Skóla- og velferðarþjónustu Árnesþings.

Skóla- og velferðarþjónusta Árnesþings er með starfsstöð í Laugarási.
Skóla- og velferðarþjónusta Árnesþings er með starfsstöð í Laugarási.

Skóla- og velferðarþjónusta Árnesþings bs. leitar að öflugum og skipulögðum aðila í starf forstöðumanns.  Um er að ræða fjölbreytt starf þar sem lögð er áhersla á faglega stjórnun, góða yfirsýn og hæfni til að innleiða og stýra verkefnum.

Ásamt forstöðumanni eru starfandi tveir deildarstjórar á sviði velferðarþjónustu og skólaþjónustu.
Ráðningin er tímabundin til eins árs með möguleika á framhaldi sem skoðað verður að þeim tíma liðnum.

Skóla- og velferðarþjónusta Árnesþings (SVÁ) er fagleg og samþætt þjónusta með velferð íbúa að leiðarljósi. Meginstarfsstöð þjónustunnar er staðsett í Laugarási en starfssvæðið er víðfeðmt og fara starfsmenn á milli starfsstöðva á þjónustusvæðinu í samræmi við verkefni hverju sinni.

Sveitarfélögin sem standa að byggðasamlaginu eru Bláskógabyggð, Flóahreppur, Grímsnes- og Grafningshreppur, Hrunamannahreppur og Skeiða- og Gnúpverjahreppur.

Umsóknarfrestur er til og með 6. mars 2026

Umsókn þarf að fylgja ítarleg starfsferilskrá ásamt umsagnaraðilum og kynningarbréf þar sem gerð er grein fyrir ástæðu umsóknar og rökstuðningur fyrir hæfni umsækjanda.

Nánari upplýsingar veita:
Sigríður Ólafsdóttir I sigga@mognum.is
Telma Eiðsdóttir I telma@mognum.is

Hér má finna nánari upplýsingar og skila inn umsókn.