Fara í efni

Laus störf í Frístundamiðstöðinni á Flúðum

Vilt þú starfa með börnum og ungmennum á Flúðum?
Frístundamiðstöð á Flúðum leitar að öflugum og jákvæðum einstaklingum til starfa.

Frístundaleiðbeinandi í um 75% starf frá 1. ágúst
Starfsfólk í tímavinnu

Frístundamiðstöðin þjónustar nemendur í 1.–10. bekk Flúðaskóla og býður upp á fjölbreytt frístunda- og félagsstarf eftir skóla.

Vinnutími

Frístund (1. - 4. b) frá því skóla lýkur til kl. 16:15 virka daga.
Félagsmiðstöð fyrir miðstig og unglingastig síðdegis og á kvöldin.
Starfsfólk vinnur á opnunum samkvæmt skipulagi.

Starfið fylgir skóladagatali Flúðaskóla.

Í júní eru sumarnámskeið fyrir yngri börn og gert er ráð fyrir sumarleyfum í júlí.

Helstu verkefni

Leiðbeina og styðja börn og ungmenni í leik og starfi.
Taka þátt í skipulagningu og framkvæmd verkefna og viðburða.
Tryggja jákvætt og öruggt umhverfi barna.

📚 Við leitum að einstaklingum sem:

Hafa áhuga á að starfa með börnum og ungmennum.
Eru jákvæðir, ábyrgir og eiga auðvelt með samskipti.
Sýna frumkvæði og geta unnið sjálfstætt sem og í teymi.
Menntun og reynsla sem nýtist í starfi er kostur. Hreint sakavottorð er skilyrði.

Hér má sjá myndband sem sýnir frá barna og unglingastarfi á Flúðum: https://m.youtube.com/watch?v=6qYSsxgj3iQ#

💲 Laun eru samkvæmt kjarasamningum Sambands íslenskra sveitarfélaga og viðkomandi stéttarfélags.

Umsóknarfrestur er til mánudagsins 22. júní 2026

📞 Nánari upplýsingar veitir deildarstjóri frístundamála barna og ungmenna, Þórarinn Guðni Helgason í síma 772-9263 eða á netfanginu toti@fludir.is.

📩 Umsóknum ásamt ferilskrá og kynningarbréfi skal skila á netfangið toti@fludir.is.